14.07.1919
Neðri deild: 7. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1932 í B-deild Alþingistíðinda. (1973)

49. mál, sérstakt læknishérað í Hólshreppi

Forsætisráðherra (J. M.):

Jeg get vel tekið undir það með hv. þm. N.-Ísf. (S. St.) að ekki sje heppilegt, að mál komi mörg fram um aukin útgjöld ríkissjóðs, en nokkur frv. eru þegar komin fram á þinginu um að fjölga læknishjeruðum. Jeg verð þó að segja um þetta frv., að jeg tel alveg sjálfsagt, að frv. sje látið ganga til nefndar. — sem hjer mun eiga að vera hv. allsherjarnefnd, — og skal bæta því við, að jeg býst við, að svo standi á um Bolungarvík, að hún ætti að koma einna fyrst til greina, ef farið yrði að fjölga læknishjeruðum. Þar er bæði fjölment, og má búast við að fjölgi þar meira en annarsstaðar. Álitamál væri þá, ef Bolungarvík væri gerð að sjerstöku læknishjeraði, hvort þá þyrfti aðstoðarlækni á Ísafirði. Jeg tel sjálfsagt, að athuga málið í nefnd og sjá, hverju fram vindur um laun lækna yfirleitt. Ef kröfur lækna um launauppbót ná fram að ganga, munar talsvert um þau auknu útgjöld, sem af svona lagaðri ráðstöfun mundi leiða, en annars ekki að ráði.