09.09.1919
Efri deild: 52. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1935 í B-deild Alþingistíðinda. (1987)

49. mál, sérstakt læknishérað í Hólshreppi

Forseti:

Jeg skal gjarnan leita afbrigða frá þingsköpunum, en jeg fyrir mitt leyti sje enga ástæðu til, að þau verði veitt. Það er í fyrsta sinn, sem farið er fram á afbrigði frá þeim um slík efni, og ef það færi að tíðkast, þá mundi leiða af því hinn mesta rugling og glundroða. Jeg vil spyrja hæstv. ráðherra, hvort hann leyfi afbrigðin.