13.09.1919
Efri deild: 55. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1936 í B-deild Alþingistíðinda. (1993)
49. mál, sérstakt læknishérað í Hólshreppi
Frsm. (Guðjón Guðlaugsson):
Jeg þarf ekki að fara mörgum orðum um þetta frv., með því að í nál. eru í 5 liðum færðar ástæður fyrir nauðsyn þess, og leyfi jeg mjer að vísa til þess. Þó er ein ástæða, sem ekki er tölusett þar, sem sje sú, að Bolvíkingar hafa þegar ráðið sjer fastan lækni með allháum launum, og sýnir það ljósast, að læknisþörfin er mikil og brýn. Vona jeg því, að frv. verði samþykt.