25.09.1919
Neðri deild: 73. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 556 í B-deild Alþingistíðinda. (202)

1. mál, fjárlög 1920 og 1921

Björn Kristjánsson:

Það voru að eins fá orð, eins og minn er vandi, að halda ekki langar ræður. Jeg vil þá fyrst geta þess, að jeg ætla mjer að styðja og samþ. till. háttv. þm. S.-Þ. (P. J.), og hafa fleiri háttv. þm. úr meiri hluta samgöngumálanefndar lýst fylgi sínu við hana. Enn fremur er það mín skoðun, að stjórnin eigi altaf að semja um ferðir, sem fje er veitt til í fjárlögum, þar sem fjárlögin geta ekki talist neinir samningar, heldur felast í þeim að eins drög til samninga. Auðvitað er best, að þau sjeu sem fullkomnust. Af þeirri ástæðu er fram komin till. sú, sem háttv. þm. V.-Sk. (G. Sv.) flytur.

Jeg er því líka samþykkur, að þessi styrkur megi ekki vera minni en 50,000 kr. Jeg er því alveg á gagnstæðri skoðun við þá, sem halda því fram, að í samanburði við styrk til annara skipaferða eigi hann ekki að vera hærri en 35,000 kr. Sá samanburður er ekki frambærilegur, þar sem hjer stendur alt öðruvísi á. Suðurland á að sigla á allar verstu hafnir landsins; skal jeg þar til nefna fyrir Vesturlandi, Búðir, Sand og Ólafsvík, þar sem alstaðar er hafnleysa. Þá er Hvammsfjörður, þar sem skip verða oft að bíða í 12 tíma bæði til að komast inn og út. Þá má nefna fyrir Suðurlandi bæði Grindavík, Stokkseyri og Eyrarbakka, þar sem einnig er hafnlaust. Í vor varð t. d. Sterling að bíða, þegar jeg kom að austan, í heilan sólarhring á Eyrarbakka í besta veðri, og varð samt að fara svo búin. Þá þekkja allir Vík í Mýrdal, þar sem skip verða oft að bíða, ef til vill í hálfan mánuð, til að ná sambandi við land. Þá er Hornafjörður, sem líkt er ástatt með og Hvammsfjörð. Loks er Djúpivogur, og er þar líka ill höfn og þokubæli. Menn sjá því, að þessu skipi er ætlað að sigla til allra verstu hafna landsins, en af því leiðir mikinn kostnaðarauka fyrir skipið, ef vel á að rækja ferðirnar. Það er því hreinasta fjarstæða að bera saman styrkinn til þessa skips og annara, sem sigla eiga á bestu hafnir landsins. Jeg vona því fastlega, að feld verði till. um að lækka styrk þennan. Styrkurinn til Þorsteins Jónssonar er alls ekki of lágr í samanburði við þennan styrk, þar sem gera má ráð fyrir, að þessar ferðir verði dýrari en allar aðrar ferðir. Þetta vildi jeg taka fram, af því jeg er sannfærður um, að það er hreinasta fásinna að ætla sjer að þröngva þessu fjelagi til að halda uppi siglingum á þessar hafnir með litlum styrk. En ef till. hv. þm. S.-Þ. (P. J.) verður samþ. og stjórnin verður látin semja við fjelagið, þá mun það koma í ljós, hvort fjelagið vill taka að sjer þessar ferðir fyrir minna, og er þá altaf hægt að taka því, ef svo yrði. Jeg skal svo ekki fjölyrða meira um þetta mál.