10.09.1919
Neðri deild: 60. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1970 í B-deild Alþingistíðinda. (2041)

140. mál, landhelgisvörn

Pjetur Ottesen:

Það var rjett hjá hæstv. forsætisráðherra, sem hann sagði, að einu þm. í Ed. hefði skilið frv. þannig, að skip væri leigt til landhelgisgæslu, a. m. k. meðan verið væri að byggja skip eða kaupa. Og eftir að þessi skýring var komin fram, þá hefi jeg það fyrir satt, að hæstv. forsætisráðherra (J. M.) hafi látið það í ljós, að hann hefði ekkert við frv. að athuga. Þess vegna þykir mjer dálítið undarleg sú mótstaða, sem fram kemur nú hjá honum, og það því fremur, þar sem þetta er nú komið fullum stöfum inn í frv.

Meining sjávarútvegsnefndanna með því, að kveða svo fast á í frv. um framkvæmdir í þessu máli, var sú, að útiloka allan ónauðsynlegan drátt á því, að hjer væri gripið til skjótra úrræða, og var það gert í þeirri fullu von og vissu, að þingið væri nefndinni sammála um þetta, hvað sem hæstv. forsætisráðherra (J. M.) liði.

Þar með er auðvitað ekki meint, að stjórnin eigi að rasa fyrir ráð fram í framkvæmdum þessa máls, og verður maður að bera það traust til hennar, að hún sje fær um að útvega heppilegt skip til landhelgisvarna. En ef niðurstaðan verður nú sú, að leigja skip fyrst um sinn, þá mega menn ekki halda, að það komi að nokkru haldi að vera að leigja mótorbáta til þessa starfa.

Reynslan er búin að sýna, að þeir koma því sem næst ekki að neinu haldi. Við botnvörpungana dugir ekki annað en hafa öflug og hraðskreið skip, vopnuð, en ekki smákænur. Jeg tek þetta fram af því, að hæstv. forsætisráðherra (J. M.) talaði svo mikið um smærri báta til þessara varna, við 1. umr. þessa máls.

Hæstv. forsætisráðherra sagði þá enn fremur, að ekki mundi verða mikil hætta á aðsókn útlendra botnvörpunga hingað fyrst um sinn. En þetta er gersamlega rangt hjá honum, eins og jeg tók þá líka fram. Hættan er þvert á móti mikil, og til dæmis um það er sá mikli trollarafjöldi, sem verið hefir hjer í vor og sumar og er altaf að aukast. T. d. voru taldir 90 trollarar undir Vestmannaeyjum í austanveðri miklu í apríl í vor, og af þeim hafa sennilega ekki nema 5–6 verið íslenskir. Fyrir stríðið voru eitt sinn taldir 140 trollarar á sömu slóðum, og er það það mesta, sem sjest hefir á einum stað. En munurinn er þá ekki svo mikill, síst þegar þess er nú gætt, að trollurum hefir stórfjölgað hjer síðan í vor. Það ætti því ekki að þurfa að draga í efa, að stór þörf er á, að undinn verði bráður bugur að framkvæmdum málsins. Og í þessu efni verður maður að treysta stjórninni til skjótra framkvæmda, en til þess, að svo verði, má þingið síst láta nokkurn bilbug á sjer finna í þessu máli. En eftir brtt. háttv. þm. Stranda. (M. P.) er stjórninni að eins heimilt að láta gera þetta, en þá líka ef til vill eins heimilt að skjóta skolleyrunum við því. En það má þingið ekki eiga á hættu í slíku nauðsynjamáli sem þessu. Eins gæti vel verið, ef annað landvarnarskip kæmi nú strax, að þá gæti orðið kapp um landhelgisgæsluna milli þess og varnarskipsins danska, sem oftast hefir að litlu haldi komið, en er nú, að því er virðist, gersamlega búið að leggja árar í bát.

Jeg vil því halda frv., eins og það kom frá nefndinni, fast fram, með breytingum Ed. Og vona jeg, að hv. Nd. taki þá deild sjer til fyrirmyndar í þessu máli og kikni ekki undir andmælum hæstv. forsætisráðh. (J. M.).