25.09.1919
Neðri deild: 73. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 565 í B-deild Alþingistíðinda. (206)

1. mál, fjárlög 1920 og 1921

Sigurður Stefánsson:

Jeg vildi segja nokkur orð um 24. liðinn í brtt. nefndarinnar, að fjárveitingin til Gilsnámunnar skuli falla niður. Þetta varð ofan á í nefndinni, fremur víst af því, að henni voru ekki nægilega kunnugir málavextir. En tildrögin eru þau, að árið 1917 í eldsneytiseklunni, var byrjað að vinna surtarbrand úr námu þessari: var það gert samkvæmt bjargráðaráðstöfunum þings og stjórnar. Bæjarstjórn Ísafjarðar og Hólshreppur fengu 100.000 kr. lán til surtarbrandsvinslunnar, en stjórnin sendi mann vestur til þess að leiðbeina við námureksturinn. En þegar maður þessi kom vestur, gaf hann þann úrskurð, að hætta við námureksturinn í námu þeirri, sem byrjað var í en vísaði hins vegar á aðra námu þar skamt frá sem lítt hafði verið unnin, en hann taldi arðvænlegri. Samkvæmt þessari leiðbeiningu var hætt við eldri námuna og farið að vinna þessa nýju námu, en hún reyndist miklu verri; var unnið þar þrjá mánuði, og reyndist náman æ verri og verri, og árangurinn varð æ minni, uns hætt var við hana og aftur farið að vinna í gömlu námunni.

Niðurstaðan hefir nú orðið sú af þessari vinnu, að tekjuhallinn varð 52000 kr. Hjer er því ekki um að ræða eftirgjöf á láni, heldur lítilfjörlega hjálp, til þess að standast þennan halla. Og þegar litið er til þess að víða urðu mistök á dýrtíðarvinnu, þá sýnist ekki til mikils mælst, þó að þingið liti á nauðsyn þessara sveitarfjelaga. Þar að auki urðu ærin mistök frá hálfu stjórnarinnar á útvegun verkfæra og sprengiefnis; verkfærin voru ljeleg og sprengiefnið lítt nothæft, og þess vegna gekk vinnan miklu ver en ella mundi.

Þetta var fjárveitinganefndinni ekki svo kunnugt sem skyldi, þegar hún feldi niður liðinn; nefndin leit svo á, að hjer væri eingöngu að ræða um eftirgjöf á láni, og á það vildi hún ekki fallast; mjer var því ekki heldur fullkunnugt um málavöxtu, en hefi síðan fengið betri vitneskju um þá. Það má segja, að hjer hafi farið allmikið fje í súginn, en svo hefir og víðar verið, þar sem dýrtíðarvinna var unnin, og hefir landssjóður hlaupið undir bagga og lagt allmikið fje fram til kolanáms, en haft lítið í aðra hönd. Þannig styrkti þingið til kolanáms í Gunnarsstaðagróf, og stóð þó fjelag einstakra manna fyrir því. Þegar litið er á ýmsa aðra dýrtíðarvinnu, sem kostað hefir landið ærna fje, þá sýnist margt mæla með, að það sje veitt, sem hjer er farið fram á. Maður sá, er stjórnin sendi til leiðbeiningar við kolanámið, reyndist misvitur í tillögum sínum, og hallinn af verkinu varð meiri af því, að eftir hans ráðum var farið, en ella mundi hafa orðið. Það er ekki svo að skilja, að jeg telji stjórnina eiga sök á þessu; afskifti hennar af málinu hafa sjálfsagt verið í góðu skyni gerð. Jeg þakka hv. frsm. (B. J.) fyrir ummæli hans um málið, og jeg vona, að hv. deild lofi liðnum að standa eins og hann er í frv., því að það er sanngjarnt. Brtt. hv. þm. Barð. (H. K.), um niðurfærslu þessarar fjárveitingar í 12,000 kr., er samkomulagstillaga, sem er stórum betri en að liðurinn sje niður feldur, þótt jeg hins vegar óski, að upphæðin fái að standa óbreytt. eins og hún er í frv.

Þá skal jeg minnast á till. fjárveitinganefndar um, að Guðmundi Hjaltasyni í Tröð í Álftafirði sjeu veittar 1000 kr. í viðurkenningarskyni fyrir bjargráð við menn í sjávarháska. Hv. þm. V.-Ísf. (M. Ó.) hefir talað svo vel fyrir þessari till., að jeg hefi þar litlu við að bæta. Umsókn þessari fylgdi vottorð tveggja manna, og sjálfum mjer er kunnugt um alla skiptapana, nema einn, sem varð áður en jeg kom vestur. Síðan hefir hann bjargað mönnum af 4 skipum, tveimur og þremur í senn. Mundi það hafa verið á fárra færi annara en hans að bjarga skipshöfnum þessum, því að hann var afburðamaður að dugnaði og formensku. Nú er maður þessi á sjötugsaldri og bláfátækur, og mundi það gleðja hann mjög að fá þessa viðurkenningu á gamalsaldri.

Það er rjett hjá hv. þm. V.-Ísf. (M. Ó.), að sá styrkur er maklegri en margur annar, sem veittur er fyrir að hafa bjargað mörgum mannslífum: og skiptapar eru svo tíðir hjer við land, að öllum ætti að vera ljúft að sjá það í einhverju við þá, sem auðnast að draga úr manntjóni því, er þeir valda.