18.08.1919
Efri deild: 33. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1999 í B-deild Alþingistíðinda. (2090)

115. mál, hafnargerð í Ólafsvík

Flm. (Halldór Steinsson):

Þó að greinargerð þessa frv. sje ekki löng, tekur hún þó fram meginástæður þær, sem fyrir frv. eru. Jeg þarf því að eins að skýra nánar nokkrar þessar ástæður.

Það er alkunnugt, að einhver bestu fiskimið landsins eru út frá Snæfellsnesi, og hafa þau frá öndverðu verið talin einhver fiskisælustu miðin hjerlendis, svo að viðbrugðið er t. d. miðunum undir Jökli. Um þessar slóðir er sjór stundaður allan ársins hring. Áður sótti þangað fjöldi fólks úr fjarlægum hjeruðum, sem þótti borga sig að flytja sig langar leiðir vissa tíma árs til að ná í fiskinn, sem oftast var skamt undan landi. Enn þá á þetta sjer stað, þótt mikið minna kveði að því en áður. Nýlega er t. d. stofnað fjelag í Reykjavík til þess að taka aftur upp útgerð í Dritvík.

Yfir höfuð má segja, að allri útgerð á Snæfellsnesi hafi hrakað á síðari árum. En orsök þessarar afturfarar er efalaust einkum sú, að ókleift er að stunda þar sjó nema á opnum bátum. Útvegurinn hefir hvarvetna tekið fljótum framförum þar sem hafnir og lendingar hafa verið í sæmilegu lagi. Þar hefir þilskipum og vjelbátum óðum fjölgað. En þar sem hafulaust hefir verið eða lendingaslæmt hefir útgerðinni þokað aftur á bak — hún hefir ekki getað fylgst með tímanum og ekki átt kost á að nota bestu veiðiaðferðir. En hafnleysið hefir líka annað ilt í för með sjer. Það verður þess valdandi, að sjórinn gleypir árlega ýmsa bestu og dugmestu sjómennina sem leggja verða í hættu líf sitt og limi í sjóðandi löðri og svarrandi brimi á opnum bátum í illum lendingum. Það er nú viðurkent, að á Snæfellsnesi sjeu einna bestir sjómenn á þessu landi, og þó munu druknanir þar almennari en annarsstaðar, og þeim mun meira að segja hafa fjölgað á síðari árum, þó jeg geti nú ekki sýnt það með tölum. Þetta kemur nokkuð af því, að menn eru nú neyddir til að vera djarfari í sjósókninni en áður og tefla tæpara sakir samkepninnar við utanhjeraðsvjelbáta og botnvörpunga, sem á síðari árum hafa vanið mjög komur sínar á þessa staði og orðið til þess ýmist að breyta hinum gömlu miðum eða fæla fiskinn lengra frá landi.

Af öllu þessu virðist augljóst, að ekki megi dragast lengur að koma upp öruggri höfn á Nesinu, og er áreiðanlegt, að ekki verður dregið úr hinum miklu mannsköðum með öðru móti. Eftir rannsókn Kirks á hafnarstæðum, sem síðustu árin hefir framkvæmt þær víðs vegar um land, hefir sú orðið niðurstaða hans, að Ólafsvík væri hentugur staður til hafnargerðar og að af hinum smærri höfnum stæði hún einna fremst. Áætlanir um kostnaðinn við höfnina eru fyrir hendi, og getur væntanleg nefnd átt kost á að kynna sjer þær.

Jeg þarf ekki að lýsa því, hvað mikla þýðingu þessi höfn myndi hafa, ekki að eins fyrir Snæfellsnes, heldur einnig aðra hluta landsins, að því er snertir þorskveiðar á vjelbátum, bæði stórum og smáum. Ekki er þó gert ráð fyrir höfn handa mjög stórum skipum, en talið, að 400–600 tonna skip geti örugglega legið þar.

Jeg er ekkert hræddur um það, að þessi höfn myndi eigi geta borið sig vel fjárhagslega. Sem betur fer, eru nú farin að opnast augu manna fyrir því, að ef landið á að verða byggilegt, verður að vinda bráðan bug að því að koma á ýmsum framkvæmdum, sem mikil fjárútlát eru samfara. Menn þola nú orðið að heyra, að minst sje á járnbrautir, stór áveitt fyrirtæki og beislun fossanna, og sortnar ekki fyrir augum við að heyra nefnd miljónafyrirtæki, en ekki er síður þörf á því að beisla hafið en fossana. Kröfur um hafnarbætur víðs vegar af landinu verða því sífelt háværari.

Að svo mæltu legg jeg til, að frv. verði vísað til sjávarútvegsnefndar, sem jeg vona að kynni sjer málið sem best.