02.09.1919
Efri deild: 46. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2002 í B-deild Alþingistíðinda. (2095)
115. mál, hafnargerð í Ólafsvík
Atvinnumálaráðherra (S. J.):
Á undanförnum þingum hefir það verið talið eitt af mestu framfaramálum þjóðarinnar að láta sjer ant um að bæta lendingar og hafnir á landinu. Og er það að vonum, því að sumstaðar vantar alveg hafnir og annarsstaðar eru þær vondar. Það liggja fyrir þinginu frv. um endurbætur á höfnunum á Ísafirði og Bolungarvík. En hjer stendur nokkuð sjerstaklega á. Því að það er að eins eitt sveitarfjelag, sem hjer á hlut að máli, og töluvert stórt fjárframlag, sem hjer er farið fram á, og er jeg hræddur um, að það verði dýrt að koma þessu í framkvæmd, og jafnvel svo, að það yrði sveitarfjelaginu ofvaxið. Jeg verð því eindregið að mæla með, að hv. nefnd taki þetta mál til nákvæmrar íhugunar fyrir næstu umr. Jeg get tekið fram, að mjer litist betur á frv. ef hlutaðeigandi sýslufjelag ábyrgðist.