25.09.1919
Neðri deild: 73. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 578 í B-deild Alþingistíðinda. (215)

1. mál, fjárlög 1920 og 1921

Hákon Kristófersson:

Jeg vildi bara taka það fram, að þó að jeg virði hv. þm. V.-Ísf. (M. Ó.) mikils, þá vil jeg alveg vísa frá mjer, að jeg sje einn af þeim 40 hröfnum, sem rifið hafa í sig landssjóðinn eins og hestskrokk. Allra síst hefi jeg gert það til eigin þarfa, og ef hv. þm. V.-Ísf. (M. Ó.) er eins laus við það, má hann vel við una.