03.09.1919
Neðri deild: 53. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 79 í B-deild Alþingistíðinda. (22)
1. mál, fjárlög 1920 og 1921
Fjármálaráðherra (S. E.):
Jeg gat þess við 1. umr. þessa máls, að mjer þætti háttv. fjárhagsnefnd áætla tekjurnar af hinum nýju lögum, sem stjórnin hefir komið í gegnum þingið, fulllágt, en þó fanst mjer ekki taka því að koma fram með brtt. um þetta. Það, sem mjer fanst sjerstaklega áætlað of lágt, var tollurinn af síldinni. En það var tekið meðaltal af síldarafla síðustu 6 árin, og áætlaði svo stjórnin 75 tn. undir meðaltali, og var það varlega áætlað. Jeg sje svo ekki ástæðu til að fara frekar út í þetta.