05.09.1919
Neðri deild: 56. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2049 í B-deild Alþingistíðinda. (2202)

141. mál, yfirsetukvennalög

Einar Jónsson:

Hv. frsm. (M. P.) taldi mig hræddan við ný útgjöld á sýslunum. Það var nú ekki rjett hjá honum, að jeg væri beint hræddur við þau, en það verður að fara varlega í að auka útgjöldin.

Mjer er kunnugt um, að dýrtíðaruppbótin til yfirsetukvenna hefir ekki alstaðar átt sjer stað, vegna þess, að þær hafa svo lítið að gera, þær stunda sitt bú og annast öll sín störf eins fyrir því, þótt þær skreppi út af heimilinu einstaka sinnum á ári til að taka á móti barni. (S. St.: Þær eru óbyrjur á Rangárvöllunum. Er það ekki?) Jeg heyri ekki hvað þm. N.-Ísf. (S. St.) er að hnýsast. En hv. frsm (M. P.) þótti einkennilegt, hvað við Rangvellingaþm. segðum yfirsetukonurnar hafa lítið að gera. Jeg veit ekkert um hugsun samþm. míns í þessu. Þetta kemur ekki til af því, að færri barnamenn sjeu í Rangárvallasýslu eða barneignir sjeu þar minni yfirleitt en annarsstaðar. Þar eru dæmi til, að hjón hafa eignast og alið upp 10–20 börn. Geri Strandamenn og Ísfirðingar betur.

Á Rangárvöllum ganga ungir efnismenn ekki árum saman ekklar. Þeir taka sjer að konu eina þeirra, sem að honum hyllist, og eykst starf yfirsetukonu að vísu oft við það. Þetta virðast Strandamenn ekki gera, en eiga að taka Rangvellinga sem fyrst til fyrirmyndar í.

En þetta mun vera svona víðast hvar í sveitum, að yfirsetukonur hafi tiltölulega lítið að gera. Jeg hafði því sjerstaklega hugsað mjer, að þörf mundi á launahækkun í kaupstöðum, en ef svo er ekki, þá þarf ekki að breyta lögunum, því jeg tel það alls ekki rjett, að yfirsetukonur í sveit sjeu nokkuð óánægðar með kjör sín.