05.09.1919
Neðri deild: 56. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2051 í B-deild Alþingistíðinda. (2205)
141. mál, yfirsetukvennalög
Gísli Sveinsson:
Jeg skal ekki verða margorður, því að mjer er ekki málið svo hugðnæmt, að vera að tala um, að kauphækkunin sje um of.
Jeg skal geta þess, að þessar 70 kr. hafa verið miðaðar við það, sem sennilegt þótti, þegar tekið er tillit meðal annars til undirbúningsins. Hann er svo stuttur — einir 6 mánuðir —, að jeg veit ekki til, að neinir starfsmenn hins opinbera þurfi jafnstuttan undirbúningstíma. Og þar að auki er námsmeyjunum veittur 45 kr. styrkur eða meira á mánuði, meðan þær eru við námið. Og þegar þess er gætt, að þetta er að eins einn vetur eða hluti úr vetri, og þessi styrkur veittur til námsins, sýnist ekki vera í mikið ráðist að leggja þetta fyrir sig. Þar að auki ber að gæta þess, að sumar yfirsetukonur hafa geysilega lítið að gera. Þær eru búkonur eftir sem áður, stunda búskap, og er að eins vitjað nokkrum sinnum á ári. Það hefir aldrei verið ætlast til með þessu fyrirkomulagi eða kaupi, að þetta yrði lífsviðurværi eða lífsstarf, atvinnugrein til að lifa á. Þessi þóknun er því ekki saman berandi við laun starfsmanna hins opinbera, til þess að lifa á. Þetta vildi jeg biðja nefndina að athuga. Og það er algerlega óþolandi, eins og til hagar, að kaupstaðir fái launin úr landssjóði, þó að sýslufjelögin fái þau að einhverju leyti, til þessa starfsfólks.