09.09.1919
Neðri deild: 59. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2057 í B-deild Alþingistíðinda. (2212)
141. mál, yfirsetukvennalög
Hákon Kristófersson:
Jeg býst við, að það nái hjer fram að ganga, sem örlátu mennirnir í deildinni vilja vera láta.
Mjer þykir mjög leitt um hv. þm. V,- Sk. (G. Sv.), sem annars er ekki vanur að láta snúa sjer frá því, er hann hefir tekið fyrir, að hann hefir nú alveg snúist frá brtt. á þgskj. 678. Hann hefir alveg kúfvent fyrir meiri hluta launamálanefndar.
Jeg lít svo á þessa brtt. hv. þm. V.-Sk. og okkar meðflutningsmanna hans, að hún sje svo sanngjörn og á rökum bygð, að hún eigi að ná fram að ganga. Það virðist svo, sem þingið ætli ekki að kynoka sjer við að skapa sýslusjóðum útgjaldabyrðar, án þess að nokkrar óskir eða áskoranir hafi fram komið í hjeruðunum.
Hv. 1. þm. Skagf. (M. G.) mintist á, að sjer væri illa við, að nokkur hluti launanna væri goldinn úr ríkissjóði. Hann benti á, hve sýslusjóðir stæðu miklu betur að vígi en ríkissjóður. Þeir þyrftu ekki annað en bara leggja á. Þessa visku hefir víst hver einasti þingmaður átt heima hjá sjer. Og vjer vitum líka, að ríkissjóður þarf heldur ekki annað en leggja á skatta fyrir útgjöldum sínum.
Eins og nú er komið, aðhyllist jeg frv. eins og það er, og brtt. á þgskj. 628 að nokkru leyti. En annars vildi jeg helst, að frv. yrði samþ. óbreytt, eins og það liggur fyrir, því að jeg geng þess ekki dalinn, að hitt verður ofviða sýslusjóðunum. (E. A.: En brtt.!). Veit jeg það, að jeg var meðflutningsmaður brtt. á þgskj. 678. en þegar hún á að falla, sje jeg, að gagnvart sýslusjóðunum er frv. miklu betra en ef brtt. þær, sem fyrir liggja, verða samþyktar.
Hv. frsm. (M. P.) benti á, að nú vantaði yfirsetukonur í mörgum hjeruðum. Býst jeg við, að það sje rjett. En í sambandi við það vil jeg benda á, að þó launin hafi verið lág áður, þá eru þau nú hækkuð um helming. Hjer við bætast svo daglaun, og verður þá ekki annað sagt en að þetta sje mikil bót.
Þá má ekki ganga fram hjá ákvæðum síðustu málsgr. 1. gr. frv., sem eru mjög þýðingarmikil gagnvart yfirsetukonum, en hv. frsm. (M. P.) og aðrir hafa alveg gengið fram hjá þeim ákvæðum.
Sem sagt, þótt allir hv. flm. till. á þgskj. 678 hafi gengið frá henni, þá hefi jeg þó ekki frá henni gengið. Og get jeg alveg eins sjeð hana felda og ýmsar aðrar jafnsjálfsagðar till.