09.09.1919
Neðri deild: 59. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2065 í B-deild Alþingistíðinda. (2217)
141. mál, yfirsetukvennalög
Hákon Kristófersson:
Hv. þm. Stranda. (M. P.) sagði, að jeg hefði verið með þessu frv. Þetta er, eins og við var að búast, að nokkru leyti satt og að nokkru leyti ósatt Þá sagði sami háttv. þm., að jeg hefði ráðist á yfirsetukonur. Þetta eru staðlausar öfgar, því jeg veit ekki betur en að jeg hafi verið meðal þeirra manna, sem hafa viljað veita þessum heiðurskonum fullkomna sanngirni í launahækkuninni. En jeg vil ekki ganga of langt, hvorki í þessu nje öðru. En mig undrar ekki, þótt hv. þm. Stranda. (M. P.) vilji það, því hann vill auðvitað vinna sjer inn vinfengi yfirsetukvenna, eins og annara launamanna, er hann hefir barist fyrir á þessu þingi. Slíkt hefi jeg ekki ætlað mjer, enda finn jeg mig enga heimild hafa til þess að afla mjer vinsælda á kostnað almennings.