17.09.1919
Efri deild: 58. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2075 í B-deild Alþingistíðinda. (2258)
154. mál, ullarmat
Guðjón Guðlaugsson:
Jeg þarf ekki að tala langt mál, en jeg hirði ekki að fara í neina launkofa með þá skoðun mína, að jeg er algerlega á sama máli sem hv. 2. þm. G.-K. (K. D.) um það, að laun ráðherranna sjeu alt of lágt sett í samanburði við hækkun launa og dýrtíðaruppbótar annara starfsmanna landsins. Auk þess má taka tillit til þess, að í ráðherrastöðurnar ætti ekki að taka nema valda menn, og það væri að gefa þeirri skoðun, að smeygja mætti þar inn stumparamönnum, undir fótinn, ef laun þeirra væru sett óhæfilega lág. Hjer er þess að gæta, að þessir menn eru æðstu menn þjóðarinnar, að þeim er ætlað vandasamt starf, sem er yfirleitt vanþakkað. Enn fremur er það athugandi, að þessi staða er stopulli en önnur embætti; það getur verið, að ráðherra haldi sinni stöðu ekki nema 1–2 ár eða jafnvel að eins nokkra mánuði, og fá síðan engin eftirlaun. Í stöðuna geta valist menn, sem ekki geta tekið embætti eftir á, enda óvíst, að á þeim stöðum sje völ, er þeir geta unað við; t. d. geta þeir ekki lotið að undirtyllustöðum á skrifstofum eða þess háttar. En hjer getur vel verið um menn að ræða, sem fara frá með fullkomnum heiðri, jeg á við af sjálfsdáðum eða af pólitískum ástæðum. Ef þeim er því ekki launað svo, að þeir jafnvel heldur leggi fyrir en hitt, auk þess sem þeir geti lifað sómasamlega, þá getur verið, að með því að hafa launin lág sje heldur ýtt undir það, að fráfarandi ráðherrar verði teknir á eftirlaun á 18. gr. fjárl., gustukagreininni, en jeg verð að telja betur farið, að reynt sje að sigla fram hjá því, og heldur hafa launin hærri.
Hjer má enn nefna eina ástæðu. Ef launin eru ekki nógu há, þá er hætt við, að duglegir menn muni fremur leita sjer aukaatvinnu, en slíkt álít jeg óheppilegt og óhæfilegt, enda þekkja allir dæmi frá sambandsþjóð vorri, Dönum, nú á síðustu árum, hversu ráðherra einn, sem hafði sjóði nokkra undir höndum, komst í gjaldþrot og varð meira að segja sakamaður, en ekki er þess þó getið, að hann hafi vanrækt ráðherrastörf sín. Það er til marks um það, að þótt mikilmenni eigi í hlut, getur svo verið, að þeir geti ekki sint báðum störfunum í senn.
Jeg mun af greindum ástæðum hiklaust greiða atkvæði með brtt. á þgskj. 866, og skammast mín ekki fyrir, þótt öðrum mönnum en mjer ef til vill standi nær að styðja slíka till.