16.07.1919
Neðri deild: 8. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 584 í B-deild Alþingistíðinda. (227)

17. mál, bráðabirgðainnflutningsgjald af síldartunnum og efni í þær

Frsm. (Magnús Guðmundsson):

Jeg vildi að eins gefa háttv. deild þær upplýsingar um gjald þetta, að samkvæmt skýrslu frá bæjarfógetanum á Akureyri eru nú þegar komnar inn 100 þús. kr. í Eyjafjarðarsýslu, og má víst búast við öðru eins, á þessu ári. Á öðrum stöðum mun einnig koma nokkuð. Að öllum líkindum verður það nærri sanni að búast við 300 þús. kr. alls. Auðvitað verður ekki sagt um það með vissu, en það er þó víst, að tekjuauki þessi verður ekki svo smávægilegur. Þetta tek jeg fram til þess að sýna, að hjer er ekki um smámál að ræða.