03.09.1919
Neðri deild: 54. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2082 í B-deild Alþingistíðinda. (2281)

135. mál, húsagerð ríkisins

Frsm. (Sigurður Stefánsson):

Fjárveitinganefnd flytur þetta frumvarp að undirlagi hæstv. stjórnar. Jeg skal játa,

að gera verður fleira en gott þykir. Og svo er með þetta. Jeg hefði helst kosið að þurfa ekki að mæla fram með þessu frv. En nú þykir orðið búhnykkur að taka lán. Að vísu minka útgjöldin í fjárlögunum talsvert í svip við það, að stórir útgjaldaliðir eru teknir burtu, en lánin þarf þó að borga síðar. Og þessi stefna er ekki tekin af öðru en því, hversu óvænlega nú þykir á horfast um það, að tekjur og gjöld ríkisins standist á. Allar þessar byggingar, sem talað er um í frv., eru vafalaust nauðsynlegar. Og um sumar er það að segja, að þær mega á engan hátt dragast. Er þar til að taka viðbótina við Kleppsspítalann, íbúðarhúsið á Hvanneyri og skólahúsið á Eiðum. Um landsspítalann má má ske segja, að hann geti beðið nokkurn tíma, en þó mun engum blandast hugur um, að nauðsyn er á, að hann verði reistur sem allra fyrst.

Þess er að gæta, að þó hæstv. stjórn fái þessa heimild hjá þinginu, þá gefur það hana í trausti þess, að hún gæti allrar varúðar og hagsýni, að hún undirbúi þessar byggingar sem best og geri sjer far um að láta reisa þær sem traustastar og ódýrastar að mögulegt er. Stjórninni er alveg í sjálfsvald sett með framkvæmdir á þessu, jafnframt því sem hún fær heimild til lántökunnar.

Viðvíkjandi einstökum af þessum byggingum skal jeg geta þess, að með íbúðarhúsið á Hvanneyri er þegar svo langt komið, að uppdrættir hafa verið gerðir af því. Eins er með viðbótina við Klepp, að teikningar eru fyrirliggjandi af henni. Og auk þess mun eitthvað vera búið að gera til undirbúnings væntanlegum landsspítala.

Nefndin felur nú hv. deild þetta mál. Hún telur nauðsyn á því að taka upp þessa aðferð, að gefa stjórninni heimild til að taka lán, svo að kostnaður af þessum framkvæmdum, sem skiftir miljónum króna, jafnist niður á eftirkomendurna, en lendi ekki einvörðungu á baki þeirra, sem uppi eru meðan byggingarnar eru reistar.