03.09.1919
Neðri deild: 54. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2087 í B-deild Alþingistíðinda. (2284)

135. mál, húsagerð ríkisins

Forsætisráðherra (J. M.):

Jeg hefi ekki heyrt nema síðustu orð hv. frsm. (S. St.). En hjer heyrðist hv. þm segja, að fleira yrði að gera en gott þætti. Jeg hjelt, að öllum þætti þetta gott, og þar á meðal hv. nefnd. Jeg held sjálfur, að það sje gott.

Jeg skal fyrst geta þess, að jeg býst við, að allir telji það óhjákvæmilega nauðsyn að bæta við geðveikrahælið á Kleppi. Hygg jeg, að sú viðbót megi ekki minni vera en hjer er farið fram á. Það hús má heldur ekki úr öðrum efnum vera en steini eða járni, vegna þess, sem það er notað til. Mig hefir stöðugt iðrað þess, að jeg lagði til, er hælið var fyrst bygt að það væri reist úr timbri. Það hefir reynst mjög óheppilegt. Síðan hefir það jafnan verið föst skoðun mín, að aldrei skuli opinberar byggingar gerðar úr öðru en steini og járni. Annað ætti ekki að koma til mála. Það er víst, að til frambúðar verður það langódýrast.

Það er gert ráð fyrir, að þessi bygging muni kosta ½ milj. kr. Er það áætlað dálítið hærra en það vonandi reynist. Eftir því, sem húsameistari sá, er um þetta hefir fjallað, segir mjer, getur það orðið 50–60 þús. kr. ódýrara. Það verður sem sje hjá því komist að „pússa“ húsið utan, og má í þess stað rjóða á það olíu. Hefir sú byggingaraðferð verið dálítið notuð hjer á húsum til sveita.

Alþingi hefir nú sjálft viðurkent nauðsynina á þessu og veitt fje til byrjunar þessari byggingu. Er búið að undirbúa hana dálítið, svo að það ætti ekki að þurfa um það að ræða, að þetta hús eigi að byggja. Og jeg get fullvissað hv. deild um, að þessi fjárveiting má engan veginn minni vera. Eins og tekið er fram í greinargerðinni, þá hefir geðveikralæknirinn skýrt svo frá, að nú þurfi hjer um bil hver einasta sveit á landinu að senda menn á hælið. Er mjer nokkuð kunnugt um þetta, síðan jeg var bæjarfógeti. Þá leið stundum varla sá dagur, að ekki bærust að kvartanir og kveinstafir yfir því, að ekki væri hægt að koma geðveikum mönnum að á Kleppi, sem komnir voru til bæjarins. Var það þá oft eina úrræðið í þessum vandræðum að setja þessa vesalings aumingja inn í fangahúsið hjer.

Þá er íbúðarhúsið á Hvanneyri. Það er af öllum viðurkent ríkissjóði skylt að reisa það. En að eins er um það deilt, hve stórt það skuli vera.

Jeg tel sömuleiðis alveg óhjákvæmilegt að byggja á Eiðum í viðbót við þau hús, sem þar eru fyrir. Það hefir komið í ljós, að þessar byggingar eru svo litlar, þegar nota á þær til lýðskólans, að þær taka að eins 1 árs viðkomu, hversu mjög sem þrengt er að. En skólatíminn er 3 ár eftir lögunum. Það þýðir ekki að setja upp skóla eins og skólann á Eiðum, nema þannig sje í garðinn búið, að hann geti komið að nokkru gagni. Ég hygg, að þótt bygt yrði nokkuð stórt hús, þá yrði samt ekki hjá því komist, að það yrði heldur lítið. Það þýðir ekki að segja, að við getum notast nú við svo lítið hús. Kröfur manna eru nú aðrar en áður var, þannig, að það er ekki í nokkurn handa máta forsvaranlegt að bjóða slíkt. Húsið á Eiðum er svo, að það tekur ekki þann fjölda, er beiðist þar inntöku á einu ári. En ef kenslutíminn er 3 ár, þá er afleiðingin sú, að við verðum að segja: „Við tökum ekki nýsveina nema 3. hvert ár“.

Þá er landsspítalinn. Þótt það væri rjett, sem hv. 1. þm. Árn. (S. S.) sagði, að það lægi ekki mjög á landspítalanum, þá verður hins vegar að gæta þess, að það er alveg ókleift og óhugsandi, að landsspítalanum

verði komið upp fyr en eftir nokkur ár. Eins og hv. frsm. (S. St.) sagði, geri jeg ekki ráð fyrir, að byrjað verði að byggja spítalann næsta fjárhagstímabil. En þessi bygging þarf undirbúning, og hann má gera á þessu fjárhagstímabili án mjög mikils kostnaðar.

Hvað það snertir, að okkur liggi ekki á landsspítalanum, þá hefir nú háskólinn sagt frá sinni þörf. Það sje bráðnauðsynlegt vegna læknakenslunnar hjer, að landsspítalinn komi svo fljótt, sem mögulegt er. Jeg held, að það sje farið að sýna sig, að alt of lítið rúm sje hjer fyrir sjúklinga, sem koma til bæjarins. Þó að hjer væri það farsóttasjúkrahús, sem bærinn er skyldur að eiga, þá yrðu ekki látnir þangað menn með almenna sjúkdóma. Þessi eini spítali, sem við höfum, Landakotsspítalinn, er alt of lítill fyrir alla þá sjúklinga, er að berast. Og svo eigum vjer ekki sjálfir þennan spítala. Um nauðsyn landsspítalann held jeg alls ekki að verði deilt. Og ef maður vill hugsa nokkuð um sóma landsins, þá verð jeg að telja það allilt afspurnar, að landið eigi ekkert alment sjúkrahús.

Þá er hitt atriðið, hvort rjett sje að fara þennan veg, að byggja þetta með lánum. Jeg sje ekki nokkurn annan veg til þess, að vjer getum bygt það, er vjer þurfum nú þegar að byggja. Auk þess, er jeg hefi nefnt, er ýmislegt, sem við nauðsynlega verðum að byggja og koma verður seinna.

Jeg sje ekki annað en að það sje fyllilega rjettmætt að byggja þessi hús með lánum. Jeg sje ekki, hvernig verður unt að komast hjá því. Jeg veit ekki, hvernig í ósköpunum verði mögulegt að setja 3–4 milj. kr. í fjárlög á 1–2 fjárhagstímabilum án þess að taka lán. Breytingin yrði sú ein, að lánið yrði tekið í fjárlögin, því að náttúrlega má ekki slá öllum bráðnauðsynlegum framkvæmdum á frest. Jeg held því, að þessi leið sje sú eina rjetta, að taka sjerstök lán, þegar svo mikið er fyrir í einu, og dreifa þeim á mörg ár. Þessar byggingar eiga að standa til langframa.

Jeg held, að það sje einmitt tækifæri nú. Jeg get ekki hugsað mjer annað en unt sje að fá viðunanleg lán nú til annara eins framkvæmda. Það hefir verið talað um, að fá mundi mega innanlands lán til fyrirhugaðra brúargerða. En þetta mál stendur mönnum miklu nær. Hygg jeg því, að vel mundi ganga að fá menn til að kaupa ríkisskuldabrjef í þessu fyrirtæki.

Jeg veit heldur ekki betur en að spítalamálið sje mjög hugleikið konum þessa lands. Hygg jeg, að fást muni lán innanlands til að byggja hann. Jeg hygg sjálfsagt að reyna nú þegar að fá lán innanlands til þess.

Það er víst alveg rjett hjá hæstv. fjármálaráðh. (S. E.), að það er nokkuð örðugt að fá lán erlendis nú. En það er ekki af því, að vjer höfum ekki bærilegt lánstraust, heldur af hinu, að það er svo að segja ekkert land í Norðurálfunni, sem hefir fje fyrir hendi, er það hafi aflögu til að lána. Bæði Danmörk og Svíþjóð, svo að jeg nefni þau, hafa sjálf orðið að taka dýr lán í Ameríku. Er því mjög ólíklegt, að þau lönd geti lánað fje, er þau sjálf þurfa að taka lán. Og þó að Norðmenn hafi enn þá fje, mun það þó farið að minka, og efast jeg stórlega um, að hjeðan af sje þess nokkur von að geta fengið lán í Noregi. Er þá Ameríka eina landið, þar sem hægt er að fá lán. En jeg skal ekki segja, hvort það myndi gagna vel, þar sem vjer erum þeim alveg óþektir. Er því ekki vert, að við búumst við að fá lán annarsstaðar en hjá okkur sjálfum. Enda hygg jeg, að margir sjeu þess nú megnugir hjer að kaupa skuldabrjef landssjóðs. Í öðrum löndum hafa menn gert mikið að slíku. Það þarf bara að byrja hjer, og það sem allra fyrst.

Það er svo sem auðvitað, að þegar t. d. bæjarfjelög í Danmörku þurfa að fá lán í Ameríku, þá er ekki von, að við getum fengið lán á Norðurlöndum, því að vitanlega leita kaupstaðirnir fyrst lána næst sjer. Enda eru lán í Ameríku mjög dýr.

Jeg skal geta þess, að við mig hafa talað menn, sem hafa þóst fá of litla vexti af peningum sínum. Hafa þeir þá spurt, hvort landið myndi ekki vilja taka við peningunum til ávöxtunar. Hefi jeg svarað því, að það væri ekki alveg víst. En jeg held, að ekki sje til of mikils mælst, þótt gert sje ráð fyrir, að með því að selja ríkisskuldabrjef innanlands myndi fást svo mikið, sem þarf til að byggja þetta. Það yrði heimt inn í einu, en þar til farið væri að nota það væri hægt að hafa það á vöxtum án skaða fyrir landið.

Jeg held, að ekki sje hægt á neinn handa máta að finna að því, þótt allar þessar nauðsynlegu framkvæmdir sjeu hafðar utan fjárlaga. Það væri þá því að eins hægt að finna að því, ef fjárlögin væru útbúin án þess, að upp í þau væru teknar þær vaxtagreiðslur og útborganir, er af þessu flýtur. Það yrði að taka upp í fjárlögin gjaldamegin, sem borga þarf af slíkum lánum. Þá á það ekki að geta haft nein óheillarík afdrif fyrir fjárhaginn. Það er mikill munur að þurfa að borga 100–200 þús. árlega í 30–40 ár, eða þurfa að leggja nokkrar milj. á 1–2 fjárhagstímabil.

Það, sem er að frv. þessu, er að þar eru teknar upp alt of fáar byggingar. Ríkið þarf að byggja meira í mjög náinni framtíð.