03.09.1919
Neðri deild: 54. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2094 í B-deild Alþingistíðinda. (2286)
135. mál, húsagerð ríkisins
Sigurður Sigurðsson:
Allir þeir, sem mælt hafa móti orðum mínum, hafa mestpart andmælt því einu, sem jeg aldrei talaði. Það gildir að minsta kosti um ræður háttv. frsm. (S. St.) og hæstv. forsætisráðh.(J. M.). Það, sem jeg sagði, var að jeg vildi, að byggingin á Hvanneyri væri tekin upp í fjárlögin. En flytja mætti svo sjerstakt frv., er heimilaði stjórninni að taka lán til viðbótarbyggingar á Kleppi. Landsspítalabyggingin verður að bíða hvort sem er, enda er það mál enn eigi nægilega undirbúið.
Frsm. (S. St.) sagði, að lántakan hefði þann kost, að byrðin dreifðist á mörg ár. En það hefir einnig annan kost, sem sje að fela útgjöldin með lánum! Það hygg jeg skammgóðan vermi. Jeg sagði aldrei, að landsspítalinn væri ónauðsynlegur eða að ekki væri þörf á honum. Hitt sagði jeg, að þar sem það mál væri enn ekki undirbúið, og spítalinn yrði ekki bygður á næsta fjárhagstímabili, þá lægi ekki á því nú, að þessu sinni, að heimila lántöku til byggingar hans.
Þó stjórnin eigi nú kost á góðum lánskjörum, þá má vænta, að þau fari ekki versnandi, heldur muni þau batna smám saman. Og ef fara ætti að taka nú lán til allra þessara bygginga, sem frv. ræðir um og það í einu, gæti svo farið, að lánunum væri eytt þegar til ætti að taka.
Hvað viðvíkur Eiðaskólanum, þá tel jeg það mjög athugavert að ráðast í þá byggingu nú þegar. Skólinn er illa í sveit settur, þar sem hann nú er, og það er spursmál, hvort ekki væri rjettast að flytja hann þaðan á aðra jörð, selja Eiða með hæfilegu verði og reyna að útvega sjer einhverja jörð þar eystra, t. d. öðru hvoru megin við Lagarfljótsbrúna eða á Völlum. Þar sem nú Eiðaskólinn er ekki vel settur, finst mjer óhyggilegt að fara að byggja þar.
Háttv. þm. Dala. (B. J.) lagðist þungt á árina, eins og hans var von og vísa. Talaði hann langt mál um landsspítalann. En jeg hafði aldrei mælt á móti honum eða byggingu hans, er til kæmi. En það mál er óundirbúið að mestu. — Þingmaðurinn hefir því viljandi eða óvart fært alt á verri veg hjá mjer, eins og hans er vani, og snúið út úr og rangfært. Hann var að tala um „fjármálaspeki“, og mátti kenna mikils gorgeirs í rómnum. Honum ferst ekki að bregða öðrum um fákænsku í fjármálum. Hann hefir aldrei fjármálamaður verið. Enda hefir engum manni dottið í hug að hæla honum sem fjármálaspekingi.
Þegar landspítalinn verður reistur, verður auðvitað að taka lán til þess. — En þar sem þm. (B. J.) mintist á lán til Flóaáveitunnar, skal jeg minna á það, að ólíku er saman að jafna, lántöku til arðvænlegra fyrirtækja eða húsabygginga.
Loks leyfi jeg mjer að segja það, að alt, sem hv. andstæðingar mínir hafa borið mjer á brýn í þessu máli, er eintómur uppspuni, gerður í þeim tilgangi, að villa mönnum sýn. En jeg vona, að sjón hv. deildarmanna sje svo skörp, að þeir láti ekki glepjast.