21.07.1919
Efri deild: 12. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 585 í B-deild Alþingistíðinda. (230)

17. mál, bráðabirgðainnflutningsgjald af síldartunnum og efni í þær

Fjármálaráðherra (S. E.):

Það er fremur óvenjulegt að leggja á skatta með bráðabirgðalögum og stjórnin lítur svo á, að þá aðferð eigi ekki að viðhafa, nema því að eins, að einhverjar sjerstakar ástæður sjeu fyrir hendi.

En nú stendur líka sjerstaklega á. — Þannig er ástatt í landinu að ýmsir útgerðarmenn áttu fyrirliggjandi miklar tunnubirgðir er kostað höfðu of fjár, í samanburði við þær, er nú flytjast til landsins, og hefðu þeir útgerðarmenn er svo var ástatt um, ekki getað staðist samkepni við erlenda útgerðarmenn, er engar tunnur áttu fyrirliggjandi.

Lögin voru því nauðsynleg til þess að vernda innlenda útgerðarmenn auk þess sem þau afla landinu rjettmætra tekna.

Það er ekki auðið að segja, hve miklu þetta innflutningsgjald muni nema, en ekki er ólíklegt, að svo kunni að fara, að ríkissjóður fái alt að 300 þús. kr.

Þar sem ástæðurnar eru svo brýnar, að vernda síldarútgerðina annars vegar, en hins vegar að afla landinu tekna, þá vænti jeg þess, að háttv. deild taki frv. vel, ekki síður en háttv. Nd., og vísi því til 2. umr.