22.09.1919
Neðri deild: 70. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2119 í B-deild Alþingistíðinda. (2318)
135. mál, húsagerð ríkisins
Magnús Pjetursson:
Það er að eins eitt atriði, sem jeg vildi minnast á. Jeg vildi nefnilega gera örstutta fyrirspurn til hæstv. stjórnar og þá um leið til hv. þm. N.-Þ. (B. Sv.). Eins og kunnugt er hefir verið kvartað undan því, að landssíminn og bæjarsíminn sjeu í húsnæðishraki. Enn fremur mun Landsbankann vanta húsnæði eftir stuttan tíma. Nú hefir heyrst, að í ráði væri að byggja gamla bankann upp og þar ætti að fá húsnæði fyrir símann og Landsbankann. Jeg veit ekki, hvort svo er. En gott væri að fá að heyra um þetta frá hæstv. stjórn, því þetta byggingarmál er nauðsynjamál sem hrinda verður sem fyrst í framkvæmd. Jeg þykist vita, að hv. þm. N.-Þ. (B. Sv.) geti líka gefið upplýsingar í málinu, því hann er einn af bankastjórum Landsbankans
Svo held jeg, að hv. þm. N.-Þ. (B. Sv.) skilji ekki rjett nauðsynina á landsspítala. Hann virðist telja, að hann eigi fyrst og fremst að vera bæjarspítali, og mælir á móti því, að bygður verði sjerstakur sóttvarnarspítali fyrir bæinn. En það hlýtur að leiða af sjálfu sjer, að hjer verður að koma sóttvarnarspítali, þar sem hann vantar alveg. Því jeg tel það engan spítala, þó að til sjeu einhverjar kompur fyrir örfáa menn og illa úr garði gerðar.
Hann segir, að það hljóti að leiða af því, að landsspítalinn er settur hjer í Reykjavík, að þá hafi Reykjavíkurbær meiri not af honum en aðrar sveitir, og eigi því að leggja mest í kostnað við hann. En ef þetta á að miðast svo, þá hefðu þessi skilyrði átt að koma niður á Vífilsstaðahælinu, þegar það var reist. Þá hefði átt að krefjast þess, að Reykjavík og Hafnarfjörður hefðu lagt sjerstaklega til þess, fram yfir aðra landshluta. En það datt víst engum í hug. Mjer finst verða að leggja mikla áherslu á, að þessar brtt. fjárveitinganefndar verði samþyktar.