12.09.1919
Neðri deild: 62. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2134 í B-deild Alþingistíðinda. (2336)
153. mál, aðflutningsgjald af kolum
Sigurður Stefánsson:
Jeg vildi spyrjast fyrir um það hjá hæstv. stjórn hvort ekki sje tilætlunin að vinna upp eitthvað af hallanum með einkasölunni, því eftir því fer aldur tollsins, hvað mikið vinst upp með henni. Eins vildi jeg fá upplýsingar um það, hve lengi tollurinn muni haldast, og eins hvernig þessi 1 milj. kr. halli er til kominn.