12.09.1919
Neðri deild: 62. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2135 í B-deild Alþingistíðinda. (2338)

153. mál, aðflutningsgjald af kolum

Sigurður Stefánsson:

Þegar 20 kr. eiga að græðast á hverju tonni, þá er það tiltölulega hærra en salttollurinn, og tel jeg hann þó fullháan. Það gæti komið til mála að hafa gjaldið lægra og vinna hallann upp á fleiri árum. Það yrði ekki eins tilfinnanlegt fyrir kaupendur kolanna. Jeg skýt þessu fram til athugunar, og sjái stjórnin sjer ekki fært að lækka gjaldið, mun jeg koma fram með brtt. við næstu umr., og vænti þá frekari upplýsinga frá stjórninni.