15.09.1919
Neðri deild: 64. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2139 í B-deild Alþingistíðinda. (2345)
153. mál, aðflutningsgjald af kolum
Frsm. (Magnús Guðmundsson):
Það var aðallega um brtt. á þgskj. 806, sem jeg vildi segja nokkur orð.
Jeg tók það fram við 1. umr., að þetta ákvæði, að miða tímann við 1 júlí 1920, er komið frá nefndinni, en ekki frá hæstv. stjórn. Jeg tók það líka fram þá að jeg byggist við því, að það gæti orðið samningsatriði, hvort sá tími eða annar yrði tiltekinn.
En nú er komin fram till. um að hafa þetta óákveðið fyrst um sinn, og sje jeg ekkert á móti því, að svo verði þar sem altaf er hægt að taka í taumana ef þörf gerist.
Jeg hygg líka, að till. þessi sje fram komin að tilhlutun landsverslunarforstjóranna, því að jeg hefi átt tal við einn þeirra um þetta mál, og var hann sömu skoðunar og háttv. flm. brtt. (St. St).
En jeg get ekki verið samþykkur því, sem hv. þm. (St. St.) sagði í sambandi við það, ef eftir yrði af birgðunum 1. júlí 1920. Það getur auðvitað altaf orðið eitthvað eftir þegar hætt er einkasölunni. Eins var um hitt, að svo gæti farið, að skortur yrði áður en hætt er einkasölunni. Það er fjarstæða, þar sem stjórninni er að eins heimilað að halda áfram einkasölunni til 1. júlí. Hún er ekki skyldug til þess, og getur því hætt þegar hún vill.
Jeg skildi ekki heldur þau ummæli, að einstakir menn gætu grætt 20 kr. á tonni, og allra síst að afleiðingin geti orðið sú, að landsverslunin tapi á sínum kolum, eins og hv. þm. (St. St.) virtist halda fram.
En með þessu er jeg alls ekki að fjandskapast gegn till. Hún hefir að vísu ekki verið borin undir nefndina, en jeg fyrir mitt leyti mun greiða henni atkv.
Þá er brtt. á þgskj. 820, um niðurfærslu á tollinum.
Það getur vel verið, að hann hafi verið settur of hár í frv., en það vil jeg biðja hv. flm. (S. St.) að athuga, að í því atriði er frv. sniðið eftir því, sem stjórnin vildi vera láta. Jeg hefi þar því ekki fyrir neinu máli að standa.
En jeg skal geta þess, að í hlutfalli við salttollinn ætti tollur þessi ekki að vera nema nálægt 14 kr. á tonn. Það er því rjett, að hann er ætlaður talsvert hærri hlutfallslega en salttollurinn.
En hjer er um það eitt að ræða, að vinna upp aftur halla þann, sem orðið hefir á kolasölunni, og er nú talinn 1 milj. króna.
En jeg get nú ekki sjeð, að þeir, sem hafa orðið þess valdandi, að slíkur halli varð á, geti nú skorast undan að greiða toll þennan til að jafna hann upp aftur.
Hjer stendur eins á og með saltið, að því leyti, og ef salttollsfrv., sem nú er orðið að lögum, var sanngjarnt, þá er þetta frv. líka sanngjarnt.
Viðvíkjandi því, að hægt sje að vinna upp tapið með einkasölu áfram, þá er það rjett, en það mundi taka langan tíma, svo framarlega sem selja á kolin með mjög litlum hagnaði. Annars er að sjálfsögðu um tvent að velja, einkasölu ríkisins eða frjálsa verslun með allháum tolli. Hvor leiðin er valin geri jeg ekki að kappsmáli, en hitt dylst mjer eigi, að ríkið verður að fá hallann bættan með öðrum hvorum þessum hætti. En kolin ættu að geta orðið ódýrari með einkasölu, ef gengið er út frá jafnmiklum rekstrarkostnaði hjá ríkinu og einstaklingnum, og jafngóðum innkaupum, því að auk tollsins þurfa kaupmenn að hafa eitthvað í aðra hönd, en ríkissjóður getur látið sjer nægja upphæð, sem svarar tollinum og kostnaði.
Það er eins með þessa till. og hina, að hún hefir ekki legið fyrir nefndinni, en jeg segi fyrir mig, að ef till. hv. 1. þm Eyf. (St. St.) verður samþ., þá sje jeg enga ástæðu til að verða á móti þessari.