24.09.1919
Efri deild: 64. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2149 í B-deild Alþingistíðinda. (2361)

153. mál, aðflutningsgjald af kolum

Fjármálaráðherra (S. E.):

Jeg þarf ekki að hafa langan formála fyrir þessu frv., enda hefir líkt mál verið hjer áður til meðferðar. Frv. er komið fram til að vinna upp þann halla, sem orðið hefir á kolaversluninni, en jeg hefi ekki skýrslur hjá mjer nú um tapið, en einn af forstjórum landsverslunarinnar er hjer viðstaddur í deildinni og mun veita allar nauðsynlegar upplýsingar í þessu efni. Svo hefir talist til, að hallinn nemi um 1 milj. kr., þegar frá hefir verið dreginn væntanlegur ágóði af þeim kolum, sem nú hafa verið keypt með ódýrara verðinu.

Fyrst þegar frv. kom fram, var ætlast til, að tollurinn yrði 20 kr., en eins og frv. er komið hingað frá háttv. Nd., er hann 10 kr., og jeg sje, að einn háttv. þm. ber fram brtt. um, að tollurinn verði 5 kr., en jeg fyrir mitt leyti tel rjettast, að hann verði látinn halda sjer eins og hann er frá Nd., og mæli því móti brtt.