24.09.1919
Efri deild: 64. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2151 í B-deild Alþingistíðinda. (2368)

153. mál, aðflutningsgjald af kolum

Magnús Kristjánsson:

Að eins örfá orð. Jeg get ekki sjeð, að gengið sje sjerlega hart að sjávarútveginum, jafnvel þó að tollurinn yrði 10 kr. Reynslan hefir sem sje sýnt það, að innlendir botnvörpungar kaupa lítið af kolunum. Það gera miklu fremur útlendingarnir.

Út af orðum hv. þm. Vestm. (K. E.) skal jeg geta þess, að alt kapp hefir nú verið lagt á það, að koma kolunum á sem flestar hafnir, og eru nú að eins eftir nokkrar hafnir á Vesturlandi, af því að skiprúm hefir vantað, en það mun lagast innan skamms.

Aðalspurningin er hjer annars um það eitt, hvort dreifa eigi hallanum á fleiri ár eða færri. Um það verður atkvgr. einkum að snúast.