24.09.1919
Efri deild: 64. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2157 í B-deild Alþingistíðinda. (2394)

145. mál, aukatekjur landssjóðs

Halldór Steinsson:

Jeg vil taka það fram, að nefndin leggur til, að dálítil brtt. sje gerð á frv., og er það í samræmi við það, sem deildin hefir áður fallist á og líka við það, sem hv. Nd. hefir áður samþykt, svo jeg fæ ekki skilið, hvernig þetta hefir komist inn í frv. Jeg vænti því, að brtt. verði samþykt.