15.09.1919
Neðri deild: 64. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2166 í B-deild Alþingistíðinda. (2407)
71. mál, bæjarstjórn á Siglufirði
Stefán Stefánsson:
Háttv. frsm. (E. A.) gat þess, að sýslumaður Eyfirðinga liti annan veg á þetta en jeg. Kann að vera, en jeg held, að hv. frsm. (E. A.) verði að játa það með mjer, að hann hafi ekki rjettarkröfu til þess að halda Siglufirði óskiftum frá sýslunni. Hv. frsm. (E. A.) mun vera það fullkunnugt, engu síður en mjer, að í 2. gr. laga um laun íslenskra embættismanna. frá 1875, stendur: „Embættismenn þeir eður sýslunarmenn, sem skipaðir eru með launum, sem ákveðin eru í launalögum, skulu skyldir að láta sjer lynda breytingar þær á yfirgripi og ásigkomulagi embættisstarfa þeirra, sem seinna kynni að verða mælt fyrir um, þótt eigi sje neitt ákveðið um það í veitingarbrjefi þeirra“. Þetta þekkir sýslumaður Akureyrar eins vel og jeg, og því þykist jeg vita, að hann muni ekki svo mjög furða sig á því, þótt hann fái jafnvel enga uppbót, sjerstaklega þar sem hann líka getur gengið undir nýju launalögin. Jeg hygg nú líka, að allir sjái, hvað það er fráleitt, að sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu hafi á hendi innheimtu á tekjum landssjóðs og einstök dómarastörf á Siglufirði, þegar þar er löglærður og lögskipaður embættismaður á staðnum. — Þá mintist hv. frsm. (E. A.) á, að það væri hart að taka besta blettinn af embættismönnunum skaðabótalaust. En hvað er þingið að gera núna? Það er hvorki meira nje minna en að taka alla blettina af embættismönnunum, svo að enginn verður eftir af þeim grænu blettum, engar aukatekjur fyrir þá, er ganga undir hin nýju launalög. Annars verður þetta mál að skeika að sköpuðu, en mjer dylst ekki, að fylsta sanngirni mælir með því.