14.07.1919
Neðri deild: 7. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 588 í B-deild Alþingistíðinda. (241)

19. mál, vörutollur

Frsm. (Þórarinn Jónsson):

Þetta frv. er enginn nýr gestur hjer á þingi. Oft hefir það verið meðal handa háttv. þm., en sjaldan hefir slíkur tollur verið vel sjeður gestur, enda hefir altaf verið eitthvað að honum fundið. Þetta bendir ótvírætt til þess, að þjóðin öll er farin að heimta, að skattakerfinu verði breytt og komið í betra horf heldur en nú er. Það verður því að vera lögeggjan frá þingsins hálfu, og er það áreiðanlega frá þjóðinni líka, til stjórnarinnar, að undirbúa nýja skattalöggjöf fyrir þingið 1921. Enda er nú fyrir- heit frá stjórninni um þetta í athugasemdum við frumvarpið. Og afsakanlegt virðist það, þó stjórnin á þessum reikulu tímum hafi ekkert aðhafst, en hjeðan af er engin afsökun til.

Að þessu athuguðu og með þetta fyrir augum álítur fjárhagsnefnd rjett vera að framlengja það form, sem skattalögin nú eru í. Fjárhagur landsins er líka svo kominn, að hann krefst þess, að ekki sje dregið úr þeim tekjum, sem landssjóður á að fá. Það, sem gæti komið til mála fyrir þá, sem óánægðir eru með þennan toll, væri að breyta honum í einhvern annan toll, svo landssjóður misti einskis í. Hv. þm. Dala. (B. J.) drap t. d. á það við 1. umr. málsins, að breyta honum í verðtoll, en því er til að svara, að þar sem það liggur fyrir að gerbreyta skattalöggjöfinni, þá er það varhugavert að fara nú að setja nýjan toll fyrir þetta fjárhagstímabil. Gæti það valdið hinum mesta glundroða að gera þannig bráðabirgðabreytingar, þar sem nú má segja, að innheimta þessa tolls sje nú komin í það besta lag, sem hún hefir nokkru sinni náð, en aftur innheimta á verðtolli háð því eftirliti, sem við höfum alls ekki ráð á, jafnframt því sem verðtollurinn gefur tilefni til hinna mestu tollsvika, með því að koma vörum í hina misdýru flokka, eða dýrari flokkum í ódýrari flokka.

Af þessum ástæðum hefir nefndin lagt það til við hv. deild, að hún samþykki þetta frv. breytingalaust.