31.07.1919
Neðri deild: 22. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2177 í B-deild Alþingistíðinda. (2428)

102. mál, atvinnulöggjöf o. fl.

Frsm. (Einar Arnórsson):

Þingsályktun þessi er fram komin af því, að allsherjarnefnd var á sama máli og flm. frv., á þgskj. 75, um að nauðsynlegt sje að setja löggjöf um það, hve nær utanríkismenn megi reka atvinnu hjer á landi, hvernig þeir megi reka hana og með hvaða hætti megi vísa þeim úr landi. Sama er og að segja um utanríkisfjelög.

Þar að auki er ýmislegt fleira í sambandi við þessi atriði, sem nauðsynlegt er að setja lög um og ekki er unt að gera grein fyrir í fljótu bragði.

Nefndin hefir ekki ætlað sjer þá dul, að gera tilraun til að undirbúa lög um jafnvandasamt og víðtækt málefni, að þessu sinni. Hún hefir ekki sjeð sjer annað fært en skora á stjórnina að undirbúa og leggja fyrir næsta Alþingi frv. til laga um málið. Hjer hefir verið borið fram eitt frv., sem snertir mjög þetta mál. Það er frv. um takmarkanir á rjetti til fasteignaráða á Íslandi. Nefndin hefir ekki athugað þetta frv. til hlítar enn þá, en hún telur æskilegt, að það gangi fram á þessu þingi. Hún býst við, að það verði svo vel undirbúið, að þetta verði kleift. Frv. er sniðið eftir samskonar frv. frá 1901 Frv. tekur að vísu að eins yfir lítinn hluta af þessu máli. En það sakar í sjálfu sjer ekki þó að þetta einstaka atriði sje tekið út úr.

Nefndin ætlast til, að áskorun hennar lendi ekki við orðin tóm hjá stjórninni. Hún treystir því, að frv. verði undirbúið í frumvarpsformi fyrir næsta þing hvort sem það verður aukaþing eða reglulegt þing.