09.08.1919
Neðri deild: 29. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2182 í B-deild Alþingistíðinda. (2447)
119. mál, vegamál
Frsm. (Gísli Sveinsson):
Samvinnunefnd samgöngumálanefnda beggja deilda hefir leyft sjer að koma fram með þessa tillögu, sem hjer liggur fyrir á þgskj. 278. Hinir 4 liðir till. ná yfir allmikið svið. En allir hafa þeir það sameiginlegt, að þeir fjalla um vegamál, sumpart í sjerstökum atriðum, og sumpart aftur alment. Að nefndin hefir komið fram með þessa till. stafar af því, að frá ýmsum mönnum hafa komið fram óskir um, að nefndin ljeti í ljós álit sitt á mörgu því, sem heyrir undir þessa liði. Jeg skal geta þess, að nokkuð af þessu var svo óundirbúið, að nefndin sá sjer ekki fært að sinna því.
1. liður till. fer fram á, að gerð sje rannsókn á því, hvort eigi sje rjettmætt að fjölga þjóðvegum og flutningabrautum, og hvar slík fjölgun eigi helst að vera. Það gefur að skilja, að þessa rannsókn yrði landsstjórnin að fela vegamálastjóra. Tillögur hans mundu svo ráða niðurstöðunni, þegar til framkvæmdanna kæmi, að því er ætla má. Það er og ætlun okkar, að stjórnin leggi ekki annað fyrir þingið í þessu efni en það, sem hann hefir mælt með. Hitt er annað mál, hvort einstakir þingmenn kunni að bera eitthvað annað fram. Þess er getið í greinargerð fyrir till., að beint tilefni til 1. liðs var það, að 2 hv. þingmenn, sem báðir eiga sæti í nefndinni, 2. þm. N.-M. (Þorst. J.) og þm. N.-Þ. (B. Sv.), fóru fram á, að tekin yrði í tölu þjóðvega aukapóstleiðin frá Húsavík í Þingeyjarsýslu, um Jökulsárbrú til Vopnafjarðar, þaðan Hellisheiði til Fossvalla í Fljótsdalshjeraði. Og auk þess fer háttv. 1. þm. G.-K. (B. K.) fram á hið sama, að því er snertir vegarkaflann milli Hafnarfjarðar og Keflavíkur í Gullbringusýslu. Það er nú svo um báðar þessar málaleitanir, að nefndin sá sjer ekki fært að taka þær til greina, eftir að hún hafði fengið álit vegamálastjóra. Um fyrri till. er það að segja, að vegamálastjóri kvaðst ekki vera nægilega kunnugur þessari leið norðanlands. Hann vill ekki gera neinar ákveðnar tillögur um þetta fyr en hann þekkir nægilega til, og getur, eftir rannsókn, áætlað, hvað dýrt yrði að gera og halda veginum við. Hvað snertir vegaraflann milli Hafnarfjarðar og Keflavíkur, þá taldi hann sjálfsagt, að sýslan annaðist viðhald á þeim vegi áfram, eins og hingað till. hins vegar leggur nefndin það til, að báðar þessar leiðir, sem tilefni gáfu til till., verði sem fyrst athugaðar, ásamt þeim öðrum leiðum, sem til greina koma.
Um aðra liði till. þarf jeg ekki að fjölyrða. Nokkur hluti nefndarinnar taldi það vera rjetta stefnu, að framlög ríkisjóðs til sýsluvega yrðu nokkru meiri en hefir verið hingað til. Nefndin hefir að vísu ekki tekið fulla afstöðu til þessa atriðis, því að það komu fram raddir móti því innan nefndarinnar. En þó áleit hún sjálfsagt að íhuga, hvort þessi stefna skuli upp tekin. Í þriðja lagi þótti nefndinni skylt, að athugað væri, hvort ekki væri rjett að taka lán til að flýta fyrir vegagerðum í landinu, líkt og lagt er til um brýr í öðru frumvarpi. Það er ekki svo að skilja, að nefndin sje hlynt þessu, þvert á móti sá hún ýms vandkvæði á því. En þar sem tilefni er gefið með öðru frv., sem fram hefir komið hjer, áleit hún, að þetta ætti að athugast, hvort það álitist heppilegt.
Þá er 4. liðurinn, að gera tillögur um gjaldstofna sýslusjóða vegna vegagerða, aðra eða fleiri en þá, sem nú eru. Það var einróma álit allrar nefndarinnar, og auk þess margra annara, utan þings og innan, að bráð nauðsyn ræki til þess að gera eitthvað í þessu atriði, að finna og ákveða fleiri gjaldstofna handa sýslusjóðum, og betri en þá, sem nú eru. Því að svo framarlega sem vegir og viðhald þeirra á að hvíla á sýslusjóðum áfram, rekur að því, að það, sem jafnað er eða hæft þykir að jafna niður, hrekkur hvergi nærri til, og kemur því ekki að nægu gagni. Hins vegar sá nefndin sjer ekki fært á þessum tíma, sem hún hafði yfir að ráða, að gera ákveðnar tillögur um slíka gjaldstofna. Það ætlar hún landsstjórninni að gera. Auðvitað getur hún til þess aflað sjer þeirrar aðstoðar sem henni þykir við þurfa.
Jeg geri ráð fyrir, að þessi tillaga öll nái fram að ganga gegnum þingið, enda þótt þær stefnur, sem þar er bent á, sjeu ekki fullákvarðaðar, og þótt ýmsir háttv. þm. muni ef til vill verða andvígir sumu af því, sem kann að verða lagt til á sínum tíma. En það þótti nefndinni nauðsynlegt, að þetta mikilsverða mál yrði rannsakað sem best, svo að komist yrði að niðurstöðu, sem vera mætti að hægt yrði að sætta sig við.
Þá er brtt. á þgskj. 300, frá hv. þm. Borgf. (P. O.) og hv. þm. Mýra. (P. Þ.), sem fer fram á, að bætt sje við 5. lið, svo hljóðandi: að íhuga, hvort eigi sje rjettast, að viðhaldi flutningabrauta verði ljett af sýslusjóðunum og kostað af landssjóði. Þetta mál hafði komið til umræðu í hv. samgöngumálanefnd; því hefði nefndin vel getað tekið þetta upp í till. með hinu, ef hún hefði viljað sinna því. En nefndin var þvert á móti þessu og samþykti að leggja móti till. Og það af þeirri ástæðu, að meiri hluti hennar vill alls ekki fara inn á þá braut að svo stöddu, er gæfi tilefni til, að viðhald flutningabrauta flyttist yfir á landssjóð nú í nánustu framtíð. Hún er þeirrar skoðunar, að það eigi og verði áfram að hvíla á sýslusjóðum, eins og hingað til, en ekki á ríkissjóði. Flutningabrautir eru í flestum tilfellum til langmestra þæginda og aðalafnota fyrir þann hrepp og sýslu, sem þær liggja um. Að vísu eru sumar brautir, er sökum legu sinnar eru svo fjölfarnar, að þær geta kallast þjóðbrautir. Sú flutningabraut, sem tilefnið gefur til þessarar till., er vafalaust sú, sem er í hjeraði háttv. þm. sjálfra, sem flytja hana. Nefndin sá sjer ekki fært að leggja til, að viðhald hennar yrði fært yfir á ríkissjóð, því að þótt hún kunni að koma að nokkrum notum fyrir menn úr öðrum hjeruðum en þeim, sem kosta viðhald hennar, þá er hitt víst, að þau hafa sáralítinn hagnað af henni í samanburði við þá sem næstir búa. Þó að viðhald slíkra brauta nemi talsverðum kostnaði, þá er hagnaður þeirra hjeraða, sem brautin liggur um, margfaldur, og þau standa að sjálfsögðu miklu betur að vígi í öllum viðskiftum. Enda mun ekki vafi á því, að mörg hjeruð, sem fara á mis við slíkar akfærar brautir, sem ríkissjóður kostar lagningu á, mundu gjarnan vilja hafa þær, þó að viðhaldskostnaður ætti að hvíla á þeim að öllu leyti. Auðvitað getur svo orðið með tímanum um einhverjar flutningabrautir, að þær verði svo alment notaðar af landsmönnum, ef mikil bygð sækir eftir þeim, að sjálfsagt þyki og rjett, að þær sjeu kostaðar að öllu af alþjóðarfje. Svo er nú ekki enn þá um þessa braut. Og með tilliti til þess, sem er, vill nefndin, eins og jeg hefi tekið fram, ekki fara inn á þá braut, að gefa tilefni til þess, að öllum viðhaldskostnaði sje varpað á ríkissjóð og af sýslusjóðum. Henni þykir nóg, að svo stöddu hið mikla fjártillag, sem lagt er fram til lagningar brauta,
Jeg finn svo ekki ástæðu til þess að fjölyrða meira um málið að sinni.