09.08.1919
Neðri deild: 29. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2195 í B-deild Alþingistíðinda. (2453)

119. mál, vegamál

Frsm. (Gísli Sveinsson):

Jeg get lýst yfir því, að frá nefndarinnar hálfu er ekkert því til fyrirstöðu, að þeir vegarkaflar, sem þeir hv. þm. Dala. (B J.) og hv. þm. Stranda. (M. P.) drápu á, yrðu teknir með í fyrirhugaðri rannsókn. Er það líka ætlunin, að hvarvetna á landinu verði rannsakað, hverjir vegir verðskuldi að komast í tölu þjóðvega.

Í greinargerð fyrir þessari þingsályktunartill. er getið um vissa vegarkafla, sem þurfi að vinda bráðan bug að rannsókn á, og verða þeir því látnir sitja í fyrirrúmi. Hvort hæstv. stjórn mundi telja sjerskyltað verða við öðrum tilmælum hv. þm. Dala. (B. J.), frekar en till. gefur tilefni til nú, það verður hún að ráðgast um við sjálfa sig. Hvernig og hvar vegir skuli sjerstaklega lagðir, um það segir till. ekkert, en nefndin hefir hins vegar ekkert á móti því, að stjórnin taki málið einnig til athugunar á því sviði.

Hv. 2.þm. N.-M. (Þorst. J.) lagði sjerstaklega áherslu á, ásamt öðrum manni í nefndinni, að rannsakaður yrði aukapóstvegurinn frá Fossvöllum á Hjeraði að Húsavík við Skjálfanda. Færði hann fram þær ástæður, að sá vegur lægi að mestu leyti, í bygð, en aðalpóstleiðin, sem nú er þjóðvegur, lægi um fjöll og óbygðir; væri því ákjósanlegra, að þjóðvegurinn lægi um bygðirnar. Jeg hefi áður drepið á, að aðalpóstleiðin er miklum mun styttri, og skemsta leiðin milli þessara hjeraða, og yrði því eftir sem áður farin.

Þessi breyting mundi og hafa talsverðan kostnað í för með sjer, því að sumstaðar yrði að gera akfæra braut, og mundi viðhald hennar verða harla dýrt. Af því að hv. þm. (Þorst. J.) er ekki við, vil jeg ekki ræða meira um þennan veg að sinni, en þetta er auðvitað alt rannsóknarefni.

Hv. þm. Mýra. (P. Þ.) var, eins og vænta mátti, gramur yfir því, að nefndin skyldi ekki taka tveim höndum við viðaukatill. hans og hv. þm. Borgf. (P. O.). Fanst nefndinni ekki nægar ástæður fyrir hendi til þess að fara inn á þessa braut, en hins vegar ræður hv. deild, hvort hún vill taka viðaukatill. til greina. Það er svo sem auðvitað mál, að sýslunefndir vilja helst losna við kostnaðinn, sem leiðir af viðhaldi flutningabrauta o. fl., og vilja koma honum á landssjóð. En það er rangt af okkur hjer að taka allar slíkar beiðnir til greina, því að þær lúta að eins að annari hliðinni. Það er því ekki að undra, þótt sýslufundur Mýrasýslu hafi samþykt áskorun til þingsins um að taka veginn þar upp á arma landssjóðs. En ef þetta yrði ofan á hjer í hv. deild, mundu fleiri sýslufjelög á eftir fara og krefjast þess, að þeirra vegum væri líka haldið við af ríkissjóði. Mundi sú byrði verða allþung ríkissjóði. Eins og viðaukatill er orðuð, á hún líka við allar flutningabrautir, en jeg tel líklegt, að hv. flm. hennar (P. Þ. og P. O.) eigi aðallega við eina flutningabraut. Nefndarinnar vilji er, að þetta verði í hvert skifti nákvæmlega athugað, ekki að eins í hjeraðinu sjálfu, heldur og af vegamálastjóra og landsstjórn, og verði svo kafli og kafli, þar sem þörfin er brýnust, færður yfir á ríkissjóð, en ekki alt kerfið í einu. Það er satt að vísu, að af flutningabrautum eða viðhaldi þeirra leiðir þungar álögur fyrir sýslufjelagið, en þessar álögur eru þá líka bein afleiðing af þeim hagnaði, sem góðar samgöngur veita. Væri það líka hrapallegt ranglæti gagnvart þeim sýslum, sem engar flutningabrautir hafa, ef ríkissjóður fær að taka allar slíkar brautir nú, er einstök hjeruð hefðu mest not og gagn af, á sínar herðar. Að svo komnu máli vill nefndin því ekki fara inn á þá braut. Auk þessa skal jeg geta þess, að þótt hv. þm. (P. Þ. og P. O.) þyki álögurnar þungar á sýslufjelögunum, þá eru þær þó ekki mikið, saman borið við það, sem ríkissjóður hefir lagt til vegabóta í þessum hjeruðum. Ef við tækjum t. d. Mýrasýslu, þá hefir landssjóður lagt einna mest til vegabóta þar. (P. O.: En Borgarfjarðarsýsla). Hún er tæplega í meðallagi. Mýrasýsla er þriðja hæsta sýslan á landinu, en hæst er Árnessýsla. Til hennar hefir ríkissjóður lagt í vegabætur á fjárstjórnartímabilinu frá 1876–1916 633,866 kr., eða yfir hálfa miljón. Næst er Suður-Múlasýsla með 325,625 kr. Þá Mýrasýsla með 308,219 kr. Þá eru eigi allfá hjeruð með 20,000–30,000 kr. tillagi, og svo upp eftir, en eigi margar með yfir 100,000 kr. tillag. Það verður því ekki annað sagt en að Mýrasýsla hafi notið feikilegra hlunninda, enda hefir þar á síðustu árum engu verið varið úr sýslusjóði til sýsluvega. Er það ofur skiljanlegt, því að þessar flutningabrautir koma algerlega í stað sýsluvega, þar sem þær liggja um sýsluna endilanga, eða með öðrum orðum — þær eru hjeraðsbrautir.

Af þessum gildu ástæðum hefir því nefndin ekki viljað taka till hv. þm. Mýra. (P. Þ.) og hv. þm. Borgf. (P. O.) til greina.