29.07.1919
Efri deild: 17. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2214 í B-deild Alþingistíðinda. (2475)

92. mál, Landsbanki Íslands, útibú í Stykkishólmi

Atvinnumálaráðherra (S. J.):

Jeg býst við því, að hv. þgdm. sje kunn frá fyrri þingum skoðun mín á því, hve brýn nauðsyn ber til að setja á stofn bankaútibú víðs vegar um landið. Þá taldi jeg upp þá staði, er að sjálfsögðu ættu að ganga fyrir, og nefndi jeg fyrst einhvern stað við Breiðafjörð.

Jeg geri ráð fyrir því, að stjórnin muni þessu máli fylgjandi, en eins og hv. flm. (H. St.) tók fram, kemur málið mest til kasta stjórnar Landsbankans.

Þá koma framkvæmdir þessa máls og mikið undir afdrifum bankamálsins hjer á þingi, um aukinn seðlaútgáfurjett Landsbankans. Nái það frv. fram að ganga, getur bankinn aukið veltufje sitt, og á hann þá hægra um vik að setja á stofn útibú. Kemur stofnun þessa útibús þá vonandi til greina í fyrstu röð.