21.08.1919
Neðri deild: 41. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2225 í B-deild Alþingistíðinda. (2497)
89. mál, lánsstofnun fyrir landbúnaðinn
Frsm. (Stefán Stefánsson):
Það má raunar segja um þessa till., að aldrei er góð vísa of oft kveðin, því þetta er nú í annað skiftið, sem slík tillaga hefir verið fram borin. Það var víst á þinginu 1916–'17, að hv. 1. þm. Árn. (S. S.) bar fram samskonar till., og var hún samþykt þá með breytingartillögu frá hv. þm. V-Sk. (G. Sv.) og vísað til stjórnarinnar. Þá var það á þinginu 1917, að við þm. Eyf. bárum fram fyrirspurn til landsstjórnarinnar, hvað aðgerðum hennar liði í málinu, og svaraði hæstv. atvinnumálaráðh. (S. J.) þá, að stjórnin hefði ekki sjeð sjer fært að leggja fram sjerstakt frv. um þetta mál, og færði þrjár ástæður fyrir því. Fyrst og fremst væri það vegna styrjaldarinnar, er gerði mönnum mjög erfitt að fá öll stærri lán. Í öðru lagi, að verðbrjef slíkrar stofnunar mundu fyrst um sinn seljast lágu verði, og væri því þar af leiðandi erfitt að útvega slíkri stofnun lánsfje. Og í þriðja lagi, að samgönguteppan við útlönd hefði það í för með sjer, að ekki væri hægt að afla sjer þeirrar þekkingar og reynslu í þessu máli, er ábyggilega mætti telja.
Þetta voru aðalástæður stjórnarinnar, en jafnframt var það látið í ljós, að stjórnin mundi gera sitt ítrasta til að greiða fyrir málinu er um hægðist.
Þrátt fyrir þetta loforð lít jeg svo á, að ekkert sje á móti því, að brýna fyrir stjórninni að hraða þessu máli. Ber þess líka að gæta, að raddirnar um nauðsyn slíkrar stofnunar eru altaf að verða háværari með ári hverju. Sjest það meðal annars af því, að nú flytja átta þm. þessa tillögu, um að lánsstofnun verði komið á fót fyrir landbúnaðinn svo fljótt, sem kostur er á.
Við landbúnaðarnefndarmenn þykjumst hafa sýnt ljóslega fram á það í okkar áliti, hversu þörfin er rík fyrir slíka stofnun. Hefir nefndin athugað málið allrækilega, og lítur hún svo á, að væntanlegum lánveitingum yrði skift aðallega í 3 flokka.
1. Jarðakaupalán, sem veitt yrðu til langs tíma með vægum vöxtum og lágum árlegum afborgunum. Til þessara lána, eða þeim náskyld, má telja lán til meiri háttar húsagerða, svo sem íbúðarhúsa, sem nú fara að verða mjög aðkallandi.
2. Þá er næsti flokkur lána, jarðabótalán. Af því, að þessi lán eru miðuð við arðinn af jarðabótunum og þær allflestar ganga úr sjer með tímanum, gerir nefndin ráð fyrir, að þau verði veitt til skemri tíma en jarðakaupalán eða meiri háttar byggingalán. Þessi lán virðist nefndinni ættu að endurgreiðast á t. d. 10–15 árum, því þá á hver skynsamlega gerð jarðabót að vera búin að borga allan upphaflegan tilkostnað.
3. Þá er 3. flokkur lána, rekstrarlán. Nefndin lítur svo á, að þessi lán sjeu einnig mjög nauðsynleg. En hins vegar virðist henni rjett að veita þau ekki til langs tíma og fremur á ábyrgð lántaka, og þá annara ábyrgðarmanna, en sem veðlán. Til þeirra lánveitinga, sem jeg þá hefi nefnt, hefir nefndin leyft sjer að benda á nokkra sjóði, sem hún hyggur vel til fallið, að lagðir væru til umræddrar lánsstofnunar. Er sú hugsun ekki ný; henni hefir verið hreyft við umræður um málið.
Sjóðir þeir, sem nefndin hefir bent á, eru: Ræktunarsjóðurinn, er hefir að mestu leyti sama tilgang; enn fremur kirkjujarðasjóður og viðlagasjóður. Um hinn síðast nefnda skal jeg geta þess, að til tals gæti komið, að hve miklu leyti honum væri varið til þessarar stofnunar, þar sem hann er ekki síður eign sjávarútvegsins en landbúnaðarins. En þó virðist nefndinni að hann eigi að geta stutt eða fallið til þessarar stofnunar að einhverju leyti. Loks hefir nefndin leyft sjer að benda á varasjóð veðdeildanna eða samanlagðan ársarð „serianna“. Sjálfsagt vantar mikið á að þetta fje nægi, og þá virðist nauðsynlegt, að veðdeild starfi áfram með nýjum „serium“ eða útvegi jafnvel bæði innlent og útlent fje á ábyrgð ríkisins. En nefndin áleit það ekki vera sitt hlutverk að benda á tilhögun rekstrar eða annars fyrirkomulags þessarar stofnunar; til þess skortir hana nægilega þekkingu á bankamálum yfirleitt. En hún vildi benda á þessi atriði og mælir eindregið með því, að tillagan verði samþykt, í trausti til þess, að stjórnin reyni að koma málinu í framkvæmd svo fljótt, sem henni er unt. Eftir því, sem hæstv. forsætisráðh. (J. M.) fórust orð við fyrri umr. þessa máls, hefir stjórnin um málið hugsað og borið það undir bankafróða menn í útlöndum, svo að af líkum má vænta þess, að hún vinni nú eindregið að framgangi málsins. Og í því fulla trausti ræður nefndin háttv. deild eindregið til þess að samþ., að þetta mál sje afgreitt til stjórnarinnar, eins og farið er fram á í tillögunni.