21.08.1919
Neðri deild: 41. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2228 í B-deild Alþingistíðinda. (2498)
89. mál, lánsstofnun fyrir landbúnaðinn
Atvinnumálaráðherra (S. J.):
Væntanlega verður ekki þörf langra umræðna um þetta mál, þar sem það hefir oft verið rætt áður hjer á þingi, og stjórnin vill vinna að því eftir mætti. Síðastliðið ár gerði hún tilraun í þessa átt, fjekk menn til þess að afla upplýsinga um slíkar lánsstofnanir erlendis. En afleiðingin af þeirri tilraun varð sú, að stjórnin þóttist ekki geta komið fram með frv. í því formi, sem henni líkaði. Af þessu leiðir aftur það, að till., sem nú er fram borin, er ekki nógu fullkomin, því eftir öllu að dæma þarf stjórnin að verja töluverðu fje til undirbúnings málinu. Hún þarf að láta bankafróðan mann ferðast til útlanda til þess að kynna sjer fyrirkomulag slíkra lánsstofnana.
Stjórnin hefir því ekki slegið slöku við málið, þótt henni hafi enn ekki hepnast að koma því fram í því formi, sem hún áleit æskilegt. Hins vegar er henni ekki hægt að lofa neinu ákveðnu um framkvæmdir málsins. En hún gerir ráð fyrir, að hver sú stjórn, sem með völdin fer, geri alt það, sem henni er kleift. En til þess er nauðsynlegt, að við till. sje tengd lánsheimild fyrir stjórnina til undirbúnings málinu. Jeg vildi þess vegna skjóta því til nefndarinnar, hvort hún vildi ekki taka málið að þessu sinni út af dagskrá og bæta því við till., að stjórninni sje heimilað fje til þess að undirbúa málið.