23.08.1919
Efri deild: 38. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2236 í B-deild Alþingistíðinda. (2515)

120. mál, eyðing refa

Guðjón Guðlaugsson:

Mjer virtist eðlilegast, og vil gera það að tillögu minni, að þetta mál verði geymt uns frv. um bann refaeldis kemur hingað. Þetta eru skyld mál og eiga saman.

Menn athuga það ekki, að um fleiri menn en skyttur er hjer að ræða. Einstakir menn, þeir sem útvega tófur til eldis, hafa engu síður tekjur af þessu en þeir, sem ala þær. Jeg hefi nýlega talað við mann, sem sagðist vera umboðsmaður bóndans í Elliðaey og útvega honum tófur austan úr Árnes- og Rangárvallasýslum, og vart þarf við því að búast, að refur, sem til Elliðaeyjar eru komnar, bít fje austur í sýslum. Þetta ættu að vera næg verðlaun handa þeim, sem stunda þetta.

Tillaga. mín er sú, að þingsályktunartillagan verði tekin út af dagskrá og geymd þangað til frv. um bann gegn refaeldi verður til umræðu.