15.08.1919
Neðri deild: 36. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2255 í B-deild Alþingistíðinda. (2543)

123. mál, landsreikningarnir 1916 og 1917

Jörundur Brynjólfsson:

Jeg hefi eiginlega ekki margt að segja, og get tekið undir það, sem hv. þm. V.-Ísf. (M. Ó.) ljet í ljós, að við getum vel unað við niðurstöðu stjórnarinnar og hv. fjárhagsnefndar í flestum atriðum. Hann mintist á nokkur atriði, sem dálítið greinir á um, og skal jeg ekki koma inn á þau, en að eins drepa á örfá önnur.

Jeg skal þá fyrst minnast á útgjöldin við bæjarsíma Reykjavíkur Jeg tel rjettara að hafa bæði tekjur og gjöld bæjarsímans í fjárlögum. Mjög góðar tekjur eru af símanum, en jeg veit ekki, hvort nauðsynlegt er að verja þeim eins og nú er gert. Þær ganga í ýmislegt til bæjarins, sem vel mætti spara, enda væri miklu betra að ætla vissa fjárupphæð til endurbóta og nýlagninga en að hafa þetta svona. Það veldur engri aukafyrirhöfn að taka bæjarsímann upp í fjárlögin.

Um 29. athugasemdina 1917, út af fylgiskjölum viðvíkjandi skilagrein landsskjala varðar, er það að segja, að við lögðum þar ekkert annað til en að skilagreinin hefði átt að fylgja, eins og líka hv. þm. V.-Ísf. (M. Ó.) tók fram. Það er auðvitað sjálfsagt að benda ætíð á það, þegar fylgiskjöl vantar með reikningum. Og ef það væri innleitt, að fylgiskjöl þyrfti ekki að leggja fram fyr en einhvern tíma og einhvern tíma, þá væri ómögulegt að segja um hvort reikningurinn væri rjettur.

Þá vildi jeg drepa nokkru nánar á 21. athugasemdina við LR. 1917. Þar taldi frsm. (M. G.) okkur endurskoðendur hafa verið nokkuð harðorða. En við höfðum alls ekki fundið að því, að reikningar vegamálastjóra væru ekki rjettir, heldur fundum við að eins að því, að þeir hefðu komið of seint, svo að ekki hefði verið hægt að gera LR. eftir reikningi vegamálastjóra. En afleiðingin af því varð sú, að reikningunum (LR. og reikningum vegamálastjóra) ber hvergi nærri saman. Reikningum vegamálastjóra var skilað tveimur dögum of seint, að sagt er, og voru það sannnefndir óhappadagar, því óneitanlega hefði það verið skemtilegra að sjá LR. í fylsta samræmi við þá. En því var ekki að heilsa. Sum fyrirtækin hafa kostað minna en LR. tiltekur, sum meira, og sumu af fjenu hefir alls ekki verið varið sem til var ætlast, heldur þá til einhvers annars. Sumstaðar sýnir landsreikningurinn, að fje, sem veitt hefir verið í sjerstöku augnamiði, hefir ekki verið eytt, alls ekkert af því verið borgað út. En þegar reikningar vegamálastjórans eru athugaðir, þá sýna þeir ekki einungis, að því sama fje, sem veitt var í fjárlögum, hefir verið eytt, heldur stundum miklu meiru.

Nú segir frsm. (M. G.), að LR. sje jafnrjettur fyrir þessu, því mismunurinn komi á reikning næsta fjárhagstímabils. Það er mikið rjett, að reikningurinn er rjettur sem heild, en þegar tekið er tillit til hinna ýmsu fyrirtækja þetta ár, þá er hann rangur. Jeg hefi aldrei sagt, að LR. væri ekki rjettur, hvað snertir innkomnar tekjur og útborgaðar greiðslur, sem fram hafa farið á árinu, nema þegar borið er saman við framkvæmdirnar. Þannig kann jeg mikið betur við, að fyrirtæki, sem lagt hefir verið í og kostar t. d. 10 þús. kr., standi á LR., en að þar standi t d. 7 þús. kr. og svo eigi maður að leita í LR. næsta árs eftir afganginum. Yfirskoðunarmennirnir voru því í fylsta rjetti sínum, þegar þeir komu með þessa aths. Og var síður en svo, að þeir væru að finna að störfum hv. frsm. (M. G.) á 3. skrifstofu, en hann er þar skrifstofustjóri, því hann mun ekki einu sinni hafa verið orðinn skrifstofustjóri þar um þetta leyti. Jeg hefi þvert á móti orðið var við, að miklu auðveldara er orðið fyrir yfirskoðunarmenn að vinna nú að sínu verki, og þakka jeg honum það einna mest. En um hitt verður ekki deilt, að það er heppilegast, að reikningarnir sjeu sem allra nákvæmastir yfir það ár, sem þeir ná yfir. Tel jeg svo ekki þörf að fara fleiri orðum um athugasemdir hv. frsm. (M. G.).