15.08.1919
Neðri deild: 36. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2261 í B-deild Alþingistíðinda. (2548)

123. mál, landsreikningarnir 1916 og 1917

Gísli Sveinsson:

Jeg stend hjer upp að eins til þess að gera lítils háttar athugasemd. Mönnum skilst víst, að í landsreikningunum stendur það og á að standa, sem greitt er á því ári, sem þeir ná yfir inn eða út, en fjárupphæðir, sem að vísu hafa verið heimilaðar í fjárlögum, en ekki verið notaðar, komi til á næsta ári. Eins getur það líka komið fyrir, að búið sje að borga út upphæð, en ekki hafi enn unnist tími til að gera þær framkvæmdir, sem hún var ætluð til, eða þó að svo sje, þá hafi ekki unnist tími til að skýra stjórninni frá þeirri framkvæmd, og kemur þá sú upphæð vitanlega í landsreikningana, þótt framkvæmdanna sje ekki meira við getið það ár. Jeg skil ekki, hvernig hv. yfirskoðunarmenn geta farið að finna að þessu, og því síður hvernig þeir, af þessu, hafa farið að vekja hjer storm, sem sett hefir margar myllur af stað. Það getur komið fyrir, að ómögulegt sje að láta greiðslur og framkvæmdir standast á, og það getur líka komið fyrir, að landsreikningar geti ekki tekið með þær greiðslur, sem æskilegt hefði verið að væru á þessu eða hinu ári, en ekki geta komið þar, sökum þess, að þær falla á annað ár. Skýrslu yfir framkvæmdir, sem er alt annað en sjálfur reikningurinn, geta menn einnig hæglega fengið, t. d. með því að bera saman fleiri ár, svo að þessi ósanngjarna og ómögulega krafa getur ekki bygst á þeirri nauðsyn.

Þá virðist mjer yfirskoðunarmennirnir vera nokkuð harðorðir í garð vegamálastjóra fyrir „dráttinn“, sem varð á reikningsskilum hans. Drátturinn var svo óverulegur, tveir dagar, að ekki er ástæða til að fárast mikið út af honum, og auk þess virðist þetta vera bygt á misskilningi.