30.08.1919
Neðri deild: 50. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2266 í B-deild Alþingistíðinda. (2557)

138. mál, Þingvellir

Einar Jónsson:

Það mundi ef til vill rjett að leggja út í þann kostnað, sem farið er fram á í þingsál. till. þessari, ef öðruvísi stæðu sakir en er. En þegar litið er á önnur stórmál, sem fyrir þessu þingi liggja og mikinn aukinn kostnað hafa í för með sjer, ef ná fram að ganga, virðist svo, sem þetta mál mætti bíða um hríð. Og þó að sanngirni mæli með því, að gerð væri alvarleg gangskör að því að varðveita Þingvöll, er margs að gæta í því sambandi. Jeg veit ekki betur en hjer liggi fyrir þinginu það stórmál, að hækka laun embættismanna að mun. Það er í alla staði rjettlátt, að svo sje gert, en þess er þá líka að gæta, að útgjöld ríkissjóðs aukast stórum við það. Og þegar þetta nemur jafnvel miljón, er ekkert undarlegt, þótt maður spyrji: Hvar á að taka inn gjöldin?

Enn fremur liggur hjer fyrir þinginu frv. um stofnun hæstarjettar í landinn. Mjer var það strax ljóst í því máli, að slík stofnun hlyti að auka útgjöld landsins að mun. Því til hvers á að setja hjer hæstarjett á stofn, ef hann á að vera húsnæðislaus? (E. A.: Nóg hús handa honum). Já, jeg hefi heyrt hv. 2. þm. Árn (E. A.) halda því fram, að hæstirjettur geti verið í tukthúsinu, en mjer finst það ekki sem eðlilegastur staður fyrir æðsta dómstól landsins. En jeg býst við, að þm. (E. A.) eigi við tukthúsið, nema hann ætli sjálfur að leigja hæstarjetti þak yfir höfuðið?

Annars finst mjer það hart að láta strika út úr fjárlögunum nauðsynleg útgjöld til brúa og vegagerða fyrir annað eins og þetta. Jeg hygg rjettara, eins og nú er þröngt um fjárhaginn, að sleppa þá heldur að strika út þörfustu samgöngutækin, en láta Þingvöll eiga sig fyrst um sinn. Þótt jeg leggi þetta til nú, þá er það ekki af því, að jeg neiti þörfinni á endurbótum á þessum fornfræga stað, heldur af hinu, að mjer finst ríkissjóður mega vart við öðrum útgjöldum en þeim allra nauðsynlegustu, sem ekki er hægt að komast hjá.