20.09.1919
Neðri deild: 69. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2314 í B-deild Alþingistíðinda. (2617)
164. mál, laun hreppstjóra
Þórarinn Jónsson:
Háttv. þm. Barð. gat þess, að hann mundi greiða atkvæði með till., en ljet þó jafnframt í ljós, að engin þörf væri að breyta hreppstjóralögunum og bæta launakjörin. (H. K.: Jeg sagðist greiða atkvæði móti till.). Þá hefir mjer misheyrst.
Hæstv. forsætisráðherra (J. M.) nefndi prófastana til samanburðar. En þeir halda visitatsiulaunum sínum, og þau hækka Þá nefndi hann líka sáttasemjara. En borgunin til þeirra er svo hlægilega lítil, nokkrir aurar, ef sætt kemst á, að slíkt ætti ekki að standa í lögum.