09.09.1919
Neðri deild: 59. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2328 í B-deild Alþingistíðinda. (2625)
143. mál, fræðslumál
Frsm. (Einar Arnórsson):
Það er að eins örstutt athugasemd.
Það á ekki við að fara út í einstakar skólastofnanir. En þessi skóli, sem háttv. þm. S.-Þ. (P. J.) mintist á, fellur undir 2. undirlið I. aðalliðs till. og verður sjálfsagt tekinn til athugunar.
Um kvennaskólana get jeg vísað til þess, sem jeg sagði í framsöguræðu minni.
Jeg tel þá falla undir liðinn um búnaðarskóla og gagnfræða- og alþýðuskóla.
Þeir eru í rauninni ekki annað en sambland af gagnfræðaskólum og búnaðarskólum.
En þó jeg telji þá hjer undir í till., þá hefi jeg ekkert á móti því, að orðinu „kvennaskóla“ verði skotið inn í. Hins vegar finst mjer það ekki nauðsynlegt.