17.09.1919
Neðri deild: 66. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2334 í B-deild Alþingistíðinda. (2636)
163. mál, rannsókn skattamála
Fjármálaráðherra (S. E.):
Jeg geri ráð fyrir, að hv. deild sje kunnugt, að stjórnin hefir bæði í athugasemdum við fjárlögin og víðar lýst yfir því, að hún telji sjálfsagt, að athuguð verði skattamál landsins. Hugsun stjórnarinnar er sú, að annast það sjálf, auðvitað með hjálp þeirra manna, sem hún telur nauðsynlegt.
En jeg skal benda á það, að eftir till. þessari liggur beinast við, að skipuð verði til þess milliþinganefnd.
Það er venjulega leiðin, og hana mætti auðvitað fara.
En það hefir viljað brenna við, að niðurstaðan af starfi þeirra nefnda hefir ekki komið fljótt fram.
Aftur á móti mundi stjórnin þegar leggja fyrir þingið sína niðurstöðu. Sú leið hygg jeg því að væri rjettari.
Hins vegar veit jeg, að jeg þarf ekki að skilja hv. flm. svo, að hann telji stjórnina ekki hafa gert alt, sem í hennar valdi stóð, til að afla tekna. Svo marga brýnuna hefir stjórnin tekið vegna skattamálanna.
Hv. flm. (Þorst. J.) sagði, að flestir skattar nú væru nefskattar. En það er ekki rjett. Tekjuskatturinn getur þó ekki talist nefskattur, og mætti nefna marga fleiri.
En hv. þm. (Þorst. J.) hjelt því fram, að rjett væri að senda mann utan til þess að útvega sjer þekkingu um, hvernig skattafyrirkomulagið sje annarsstaðar. Jeg verð að líta svo á, sem þetta sje óþarfi, þar sem við höfum póstgöngur, símasamband og lög annara þjóða, sem stjórninni er auðvelt að afla sjer. Það er hægt að fá allar upplýsingar um erlenda skattalöggjöf án þess að senda mann utan.
Mjer skildist á frsm. (Þorst. J.), að helst ætti að leggja fram endurskoðaða skattalöggjöf eftir eitt ár. En það er mjög óvíst, að því verði komið við, þar sem stjórnin hefir svo mörg stórmál önnur með höndum, og svo fara kosningar í hönd o. s. frv. Þetta væri því að gera alt of háar kröfur til fjármálastjórnarinnar. Það má búast við, að endurskoðunin taki langan tíma, því ekki þarf að eins að endurskoða lögin, heldur einnig finna nýjar leiðir.
En ef menn búast við því, að hægt verði að endurskoða skattalöggjöfina þannig, að skattarnir komi ekki til muna hart niður á gjaldendurna, þá held jeg, að þjóðin verði fyrir vonbrigðum. Því það er hverjum sem er ofvaxið. Hitt er satt, að ýmislegt má laga, og málunum þarf að koma í fastara horf en nú er.
Það er skorað á landsstjórnina að láta rannsaka. — Það þarf að koma skýrara fram, hvað er átt við með þeirri rannsókn, hvort ætlast er til að skipa milliþinganefnd í málið, eða að eins heimila stjórninni að taka sjer aðstoð.