17.09.1919
Neðri deild: 66. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2386 í B-deild Alþingistíðinda. (2672)
79. mál, lögnám á umráðum og notarétti vatnsorku allrar í Sogni
Forseti:
Háttv. þm. Dala. (B. J.) skaut því til forseta, hvort tillaga þessi gæti komið til umræðu og atkvæðagreiðslu samkvæmt 32. gr. þingskapanna. Í þeirri grein er ekki beinlínis talað um þingsályktunartillögur. En þó því sje slept og gert ráð fyrir, að ákvæði greinarinnar nái einnig til þeirra, þá er fyrst á það að líta, að hinn umræddi annar töluliður tillögunnar, sem feld var í gær, var ekki borinn sjerstaklega upp til atkvæða; en vitanlega má segja, að hann hafi verið feldur með hinum liðum tillögunnar. En þá kemur til skoðunar, hvort hann hafi verið alveg samhljóða að efni tillögu þessari. Í þeirri till. er sá fyrirvari hafður, að hæstarjettardómur sje fallinn fyrir því, að einstaklingar eigi vatnsorkuna, áður en stjórnin fari að gera ráðstafanir til, að ríkið nái gegn bótum fullum umráðum og notarjetti á vatnsorku Sogsfossanna. En í tillögunni á þgskj. 121 er bein áskorun til stjórnarinnar að gera þegar í stað, og án þess að dómur hafi fallið um eignarrjett til vatnsorkunnar, ráðstafanir til að ná umráðum og notarjetti á vatnsorkunni í Soginu. Hjer er auðsjáanlega mikill mismunur, og úrskurðast því, að tillagan komi til fullrar meðferðar og atkvæðagreiðslu í deildinni.