17.09.1919
Neðri deild: 66. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2393 í B-deild Alþingistíðinda. (2675)

79. mál, lögnám á umráðum og notarétti vatnsorku allrar í Sogni

Bjarni Jónsson:

Það var að eins svar til hæstv. forsætisráðh. (J. M.). Hann hjelt því fram, að jeg mundi hvorki sjá nje heyra, og væri því mjög leiðinlegt að tala við mig. Mjer þykir það trúlegt nú, að honum þyki leiðinlegt að tala við mig, þótt hann hafi stundum verið fús til þess.

En hvað sem því nú líður, að jeg sje skilningarvitalaus, þá er það víst, að hann heyrir. Jeg sje það á því, er hann spurði, hvort jeg skildi ekki, að þar sem stjórnin hefir sagt af sjer, þá geti hún ekki gert það aftur. Jeg sje á þessu, að hann bæði heyrir og man, því að það er rjett eftir mjer haft, að sá, sem fallinn er og liggur, getur ekki dottið. En þetta er eflaust eina ráðið hjá hæstv. stjórn, að segja af sjer til þess að geta setið, því að eins og nú standa sakir, getur hún ekki fallið.

En þar sem hæstv. forsætisráðh. (J. M.) heldur því fram, að jeg sje leiðinlegur, þá skal jeg játa, að svo sje. En það bætir úr, hvað hann er skemtilegur.

Þá taldi hann mig ekki hafa farið rjett með það, sem hann sagði um rjettaróvissuna. En það var rjett hjá mjer, að hann sagðist vera viss um að hjer væri ekki um neina rjettaróvissu að ræða. Hins vegar benti jeg á, að það væri þó ljóst, að hjer væri um óvissu að ræða, þar sem kennarinn í rjettarsögu væri á annari skoðun.

Þar sem háttv. þm. S.-Þ. (P. J.) talaði um þessa fjársöfnun, þá hygg jeg, að hvorki hann nje aðrir þurfi að vera í neinum vandræðum út af því, ef landið á annað borð rjeðist í fyrirtækið, því að á því er engin hætta, nema svo framarlega að fyrirtækið sje viturlegt og víst fyrirfram, að það geti borið sig. En þá mun hægt að fá fjeð, sem með þarf.

Jeg hefi ekki talið það neitt vitlaust, að aðrir ættu hluti í fyrirtækinu. En jeg hafði ekki hugsað mjer, að ríkið ætti í því að eins 40%, heldur að minsta kosti 60–70%. Hitt mættu svo aðrir hafa.

Jeg skal svo ekki orðlengja meira um þetta; að eins skal jeg lofa því, að það skal verða öllum ljóst og sjást svart á hvítu, hverjir það eru, sem svo brátt vilja kveða upp, að einstaklingarnir eigi rjettinn til vatnsnytjanna.