23.09.1919
Neðri deild: 71. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2438 í B-deild Alþingistíðinda. (2702)
79. mál, lögnám á umráðum og notarétti vatnsorku allrar í Sogni
Bjarni Jónsson:
Mjer er líkt farið og hv. þm. S.-Þ. (P. J.), að jeg vil ekki láta þetta mál fara svo í gegnum deildina, að jeg láti því ekki fylgja nokkur orð. Og þar sem hann hefir nú litið á það með þeim hætti, sem orð hans lýstu, þá vil jeg ekki láta það fara svo út úr neðri deild Alþingis, að ekki verði litið á það íslenskum augum.
Jeg vil geta þess, að inngangi, að jeg þykist hafa orðið þess var, að hv. þm. sje það ljóst, að nauðsynlegt er, að löggjöfin hafi glögt yfirlit yfir þarfir og skyldur þjóðarinnar, engu síður en landsstjórnin. Jeg hefi sjeð, að menn hafa haft opin augun, þegar þeir hafa beint þeim út á við. Þeir hafa staðist þær árásir, sem gerðar hafa verið á hag og sóma þjóðarinnar í utanríkismálum á þessu þingi Jeg læt mjer nægja að nefna eitt dæmi — sendiherrann. Þingið hefir nú veitt honum svo virðulegt nafn og stöðu, að hann getur þess vegna unnið að því, sem honum er ætlað, þótt einstakir þm. ljeti glepjast af lítilmótlegu og fávíslegu þvaðri um það mál. Jeg hirði ekki að nefna fleiri dæmi, en treysti því, að þetta yfirlit reynist landinu happadrjúgt í framtíðinni.
En það er ekki síður þörf, að menn hafi yfirlit yfir þarfir þjóðarinnar í innanlandsmálum. Jeg ætla að benda á tvær hliðar — skólamál og menta og vísinda annars vegar, og atvinnumál á hina hliðina. Það er nauðsynlegt, að skipulag sje á þessum málum, og má ekki lengur una við það tildur í skólamálum, sem nú er. Börnum og unglingum er skipað að læra graut í hinum og þessum tungumálum og fá nasasjón af mörgum námsgreinum, en það verður til þess, að þau ösla á hundavaði yfir helstu námsgreinar, án þess að kunna eða skilja nokkuð til hlítar. Nú skilst mjer, að menn sjeu komnir á þá skoðun, að það, sem kent sje, verði kent svo, að að gagni komi, kent svo, að nemendur læri að læra, skilja og kunna, og sje ekki hafðar til þess erlendar tungur eða því um líkt, heldur einkum móðurmálið. Þingið hefir fengið það yfirlit í þessu máli, sem nauðsynlegt er. Það sýna þær áskoranir og till., sem fram hafa komið um þessi efni og verið samþyktar á þinginu, og er mjer ánægja að því, að geta sagt þetta með sanni?
Þá er jeg kominn að atvinnumálunum. Það er ekki lítið undir því komið, að menn hafi yfirlit yfir kosti og galla landsins, yfir máttuleika atvinnuveganna og hættur þær, sem þeim ógna.
Það er ekki nægilegt að einblína á einhvern einn atvinnuveg og vilja hlaða undir hann á kostnað annara. Útveg á vitanlega að efla og auka, en þó verður að gæta þess, að hann verði ekki búnaði landsins ofjarl, því að þá væri illa farið. Þingmanni er því eigi nóg að bera skyn á þann atvinnuveg einan. Þó að landbúnaðurinn fylli ekki eins gullkisturnar og aðrir atvinnuvegir, þá mun hann þó verða drýgstur til viðhalds og eflingar menningu og mentun. Þó tjáir eigi löggjafanum að líta eingöngu á hag þeirrar atvinnugreinar, heldur á heildina og hag alþjóðar. Það verður ekki sagt, að maður hafi þetta nauðsynlega yfirlit, sem sjer framtíð landsins í handiðn, þótt hún sje nauðsynleg. Því síður hefir sá yfirlitið, sem blindar augu sín með því að stara í gullsólina nýju — stóriðnaðinn. Það þýðir ekki að líta á gullið eitt, það verður að athuga það, hvaða áhrif þessi iðja hefir á aðra atvinnuvegi landsins, efnahag þjóðarinnar yfirleitt, menningu hennar og einkenni. Vjer getum í þessu efni farið að dæmi annara þjóða og þurfum því eigi að rannsaka sjálfir nje hlaupa af oss hornin. Jeg hefi áður látið prenta brjef frá norskum verkfræðingi um áhrif stóriðju í Noregi. Það er ekki hægt að telja vitnisburð þessa manns markleysu eina, því að hann er viðurkendur dugnaðarmaður og meðal fremstu verkfræðinga þar í landi, og hefir unnið við flestar stórvirkjanir í Noregi, svo sem Rjukan og víðar, og síðan verið forstöðumaður iðjuvers í Vestur-Noregi. Hans vitnisburður er sá, að stóriðjan hafi raskað svo jafnvægi atvinnuveganna, verðmæti eigna í landinu, að til vandræða horfi. Landbúnaðinum er stórhætta búin, og hefir það sýnt sig frá upphafi, því að vinnukraftur er orðinn svo dýr, að bændur hafa ekki efni til að kaupa hann og verða að láta sinn eigin nægja. Þetta eru nú áhrifin í Noregi og býr þar þó þjóð, sem telur þrjár miljónir íbúa og hefir yfir miklum auðæfum að ráða. Og það sagði hann afdráttarlaust, að ef hjer á landi yrði leyft eitt slíkt stóriðjuver, hvað þá tvö, að eftir tuttugu ár væri eigi framar um neina íslenska þjóð að ræða. Jeg skil ekki annað en reynsla Austmanna verði til þess, að hv. þm. skoði huga sinn um afleiðingar stóriðju hjer á landi. Hjer býr fámenn og fátæk þjóð í víðlendu landi. Það er strjálbygt og samgöngur ófullkomnar. Ef stóriðja risi upp þá yrði hún til þess að draga svo fólk frá landbúnaðinum, að jarðir legðust í eyði, því að enginn væri til að reka þær. Fasteignir yrðu verðlitlar, svo enginn samanburður vari við það, sem nú er, að þeim jörðum undanteknum, sem næst lægju iðjuverinu. Þar mundu nokkrar hræður hokra, til að fylla þarfir lýðsins, sem í verksmiðjunum ynni. Stórbændur hrökluðust af höfuðbólum sínum og yrðu þjónar iðjuhöldanna. Þetta yrði afleiðing stóriðjunnar, hún legði atvinnuvegi landsins í kalda kol, hún gerði að engu menningu vora og þjóðerni, því að varla væri hægt að tala um oss sem sjerstaka þjóð, og gullið rynni út úr landinu og yki á auð efnamanna úti í löndum, sem hefðu landið að fjeþúfu.
Erlendur verkalýður flyttist inn í landið og afmannaði Íslendinga. Fyrst mundi tekinn allur sá vinnukraftur, sem hjer væri að fá, þar til sveitirnar væru tæmdar og landbúnaðurinn í eyði. Síðan yrði að sækja til útlanda. Það yrði stóriðjunni ekki nægilegt að breyta bændaliði landsins í iðnaðarlýð, heldur rændi hún þá síðan þjóðerninu, og þá færi gróði hennar að verða tvísýnn.
Menn skilja betur, hver hætta er á ferðum, ef þeir athuga, hve mikils mannafla þarf. Það er gert ráð fyrir, að einn mann þurfi á hver 80 hestöfl í iðjuveri, og eru þá ekki taldir þeir, sem vinna að því að koma því á fót. Þetta er að eins til starfrækslunnar. Ef gert er ráð fyrir, að 500 þús. hestöfl sjeu virkjuð, þá þyrfti til þess 6250 verkamenn, og margfaldaðir með fjölskyldutölunni 5 verða það sem næst 32 þús. manns. Nú lifa 48 þús. manna á landbúnaði, og hossaði það ekki hátt, þó að hann yrði rændur öllum vinnuhjúum sínum.
Afleiðingin yrði sú, að flytja þyrfti inn milli 20 og 30 þús. manns, auk þess sem landbúnaðurinn yrði eyðilagður og það að orðið, sem jeg hefi áður lýst. Þessi útlendingar hlytu að raska jafnvæginu hjer innanlands. og ekki mundu þeir sætta sig við að læra íslensku sem móðurmál, heldur færu þeir eðlilega fram á að nota sitt eigið mál bæði í skólum, lögsögu o. fl. Hver væri gróðinn fyrir Íslendinga þá? Þeir fengju að losna við þjóðerni sitt, sem þeir hafa orðið að sitja uppi með í margar aldir. Þeim gæti orðið það afsökun á dómsdegi, að þeir hefðu glatað þjóðerni sínu af ósigrandi orsakarnauðsyn, en ekki af uppskafningshætti einum.
Peningahagnaður landsmanna yrði enginn, því ágóðinn rynni allur til iðjuhöldanna. Kaupgjald færi að vísu í vasa landsmanna, en í þess stað fjellu atvinnuvegir þeirra til grunna, og jarðeignir yrðu verðlausar í fjórum fimtu hlutum landsins. Ef minna yrði virkjað, þá yrðu áhrifin minni, en sama eðlis. Þeir af hv. þm., sem yfirlit hafa yfir atvinnuvegi landsins, hljóta að sjá, að ekki er stofnað til gróða fyrir Ísland með stóriðju.
Hv. þm. S.Þ. (P. J.) bar mjer það á brýn, að jeg hefði farið óvirðulegum orðum um hann og aðra þá, sem væru honum sammála. Jeg get ekki kannast við þetta, en hitt skal jeg kannast við, og standa við, að jeg hefi farið rjettum orðum um till. þeirra og skýrt afleiðingar þeirra, ef þær ná fram að ganga. Þeir verða að eiga það við samvisku sína, hverjar hvatir þeirra eru, jeg ætla ekki að gera þeim mein. En svo langt er nú gengið fylgi Íslendinga við erlend fossafjelög, að jeg verð að undrast. Mjer þykir það ekki sama, að íslenskir þingmenn eða embættismenn, eða menn á biðlaunum, taki að sjer vinnu fyrir erlend fjelög, sem komist hafa yfir fallvötn á miður höfðinglegan hátt. Jeg á hjer ekki við hv. þm. S.-Þ. (P. J.) eða fjelag það, sem hann er í því að það er heiðarlegt fjelag, að minsta kosti veit jeg ekki betur. En það er alkunna, að fallvötn hafa verið gint út úr mönnum fyrir hlægilega lítið verð. Leppar og sendisveinar erlendu fjelaganna hafa riðið um sveitir og glapið menn til að selja sjer rjettindi sín. Þeir hafa bent á mórauða jökulelfina, skolpið, sem til einskis var nýtt, og boðið fje í það. Þeir hafa talið mönnum trú um, að þeir hefðu gott af að selja, en kaupendunum gengi ekkert annað til en sjerviska. Á þennan hátt hafa þeir keypt fossa fyrir 200 krónur eða minna.
Með slíkum hætti hafa menn þóst fá umráð yfir miklu vatnsafli. Ekki eiga þó öll fjelög sammerkt um þetta, þau er leitað hafa hófanna hjer um fossakaup. Þannig hafa þau fjelög, sem upp á síðkastið hafa keypt hjer vatnsrjettindi, borgað þau betur en fyrri gerðu. Kunnugt er um fjelag það, er hv. þm. S.-Þ. (P. J.) er í stjórn þess, að það hefir engin vatnsrjettindi keypt hjer, en að eins leigt lítinn hluta úr Soginu, rúmar 11,000 hestorkur. Það, sem jeg hefi sagt um kaup á vatnsrjettindum hjer á landi, á því ekki við það fjelag. Hv. þm. (P. J.) þarf því ekki að stökkva upp á nef sjer og reiðast út af því, sem jeg talaði um prang, að öllu óviðkomandi honum og fjelagi hans.
Það er naumast rjett, að jeg sje meðal þeirra, sem hæst gala hjer um vatnamálin. Jeg hefi ekki sóst eftir að selja eða leigja neitt af gæðum landsins, nje heldur því, að að vera í stjórn þeirra fjelaga, sem hugsa sjer að græða á afllindum Íslands. Þeir hanar gala hæst, sem láta til sín heyra út yfir hafið alla leið til útlanda, og vísa með gali sínu hröfnum á bráð hjer heima.
Jeg skal svo ekki fjölyrða um þetta; hv. þm. (P. J.) má vera mjer reiður eða óreiður, eftir því sem honum þóknast. En hann má ekki taka orð mín öðruvísi en jeg sagði þau og meinti. Jeg þekki það ekki, að vera sá mannaþræll, er eigi þori að halda uppi rjetti hinnar íslensku þjóðar, hver sem í hlut á, og verja hann gegn yfirgangi og græðgi útlendinga.
Hv. þm. (P. J.) tók það illa upp fyrir mjer, er jeg mintist á þá stjett manna, er leppar nefnast. Það er þó ekki ófyrirsynju, að á þá er minst, því að hjer er meira af þeim en víðast annarsstaðar, og liggja auðsæ rök að því. Hjer hafa verið leppar fyrir síldveiðamenn, fyrir fossabraskara, fyrir þá, sem vildu græða á ýmsa lund, en voru vant við komnir sjálfir. Jeg vænti þess, að hv. Alþingi, sem hefir skýrt yfirlit yfir þörf atvinnuveganna, gæti þess, að leppar eru hjer ekki torfengnir fyrir þá, sem vilja ná tangarhaldi á fossaiðnaði hjer eða öðrum atvinnugreinum vorum. Þegar hegningarlög vor verða endurskoðuð, má ekki gleyma leppunum, heldur leggja þungar refsingar við leppmensku, því að hún er þjófnaði verri og stórhættuleg fyrir þjóðlíf vort.
Um vatnamál vor hefi jeg það að segja, að jeg tel rjett vera að byrja á því að virkja smávötnin, svo að alþýða manna geti þaðan aflað sjer ljóss og hita. Vjer ættum að geta klofið kostnað við þetta, þótt leiðslutækin verði dýrari hjá oss en annarsstaðar til notenda, sökum strjálbygðarinnar. Víða hagar hjer þó svo til, að það borgar sig best að hafa orkuverin smá, en víða, til að komast hjá löngum leiðslum. Á þennan veg hygg jeg, að það muni borga sig að lýsa upp bæi og hita, og að þannig mætti afla raforku til að draga plóga, mala áburð og knýja fram smáiðnaðarvjelar. Til þessa þyrfti ekki stórfje og ekki meira en landsmenn gætu sjálfir lagt til; þyrfti þá ekki að fara til útlanda til að sækja fje þangað. Við þetta sparast vinna, svo að ávinningur yrði áreiðanlega meiri en tilkostnaður.
Þetta er hinn rjetti vegur, sá vegur, sem Íslendingar ættu að fara í þessu máli. En þar sem jeg hefi lagt til, að Íslendingar tækju Sogið, þá er það af tveim ástæðum. Fyrst og fremst verður ekki spyrnt móti broddunum. Eitthvað verður að gera og einhvern stærri fossanna verður að taka til virkjunar. Íslendingar eru svo ákafir framfaramenn, að þeir geta ekki unað við að byrja smátt, fikrað sig svo áfram og beðið eftir því að læra af reynslunni. Þetta sást best þegar þeir á skömmum tíma keyptu smáa og þilfarslausa vjelbáta, lítt hæfa til fiskveiða hjer, fyrir einar 3 miljónir króna. Þetta gerðu þeir áður en nokkur veruleg reynsla væri á það komin, hvernig bátar þessir mundu gefast, og fór sem fór, að þar var miklu fje varpað í sjóinn, að heita mátti sökum bráðláts framfarahugar, en manndrápsbollar í aðra hönd. En þótt land þetta sje gagnauðugt, einkum sjórinn, verða atvinnuvegirnir að vera ærið arðvænlegir, eigi þeir að þola slíka skelli.
Jeg vil hjer láta undan bráðlæti manna með því, að Sogið sje tekið til virkjunar, því að eigi mun það ofviða fyrir oss, þótt margt hefði mælt með því, að byrja enn smærra og þreifa sig áfram og læra af reynslunni. Það hefir verið talað um að fá 60,000 hestorkur úr Soginu. Jeg hygg, að 30,000 af þeim yrðu hagnýttar í þarfir Reykjavíkur, Hafnarfjarðar, Eyrarbakka, Stokkseyrar og einhverra af sveitabæjum í Árnessýslu og Gullbringu- og Kjósarsýslu og víðar, þangað sem fært væri að veita orkunni. Þá væru eftir 30,000 hestorkur, sem stjórnin gæti selt til atvinnurekstrar, sem hættuminstur væri fyrir höfuðatvinnuvegi landsins. T. d. mætti nota 6–10,000 hestorkur til saltvinslu úr sjó. Mundi þá, ef vel gengi, fást nóg salt handa Íslandi og meira til. Þetta er ekki mannfrekur atvinnurekstur. Þá eru eftir 20,000 hestorkur, sem mundi mega gera arðberandi á einhvern hátt, t. d. við smáiðnað ýmiskonar, og ef til vill með því að vinna áburð úr loftinu með aðferð Huberts hins þýska. Eftir henni þarf miklu minni orku til áburðarvinslu en með aðferð þeirra Birkelands og Eides, og mundi ekki þurfa meira en 20.000 hestorkur til að afkasta jafnmiklu með þýðversku aðferðinni, sem unnið fengist með 200 þús. hestorkum eftir norsku aðferðinni.
Til þessarar iðju mundi ekki þurfa fleira fólk en fá mætti úr Reykjavík einni, henni að skaðlausu. Iðjuver mætti svo setja í nánd við Reykjavík, t. d. við Kollafjörð. Þetta gæti orðið vísir til iðnaðarstundunar, er þroskaðist smátt og smátt á tveim til þrem öldum, að hættulausu fyrir þjóðernið og aðra atvinnuvegi landsins. Vjer höfum svipað dæmi hjá Englendingum. Þeir voru fram eftir öldum aðallega bændaþjóð, og seldu ull sína óunna til Niðurlanda. En svo tóku þeir smátt og smátt að gefa sig við iðnaði, og á 300–400 árum hafa þeir úr bændaþjóð orðið ein mesta iðnaðarþjóð heimsins, án þess að því hafi fylgt snöggar byltingar eða þjóðernisháski. Ef iðnaðarflóðið hefði steypst af skyndingu yfir England, þá mundi þar öðruvísi umhorfs en nú er, og efasamt, hvort enskt þjóðerni væri þá ekki horfið úr sögunni, og hvort enska ríkið væri þá til. Þetta dæmi þurfa Íslendingar að hafa fyrir augum og setja sterkan hemil á skjótan vöxt stóriðnaðar hjer á landi, til að forða þjóðinni frá að sökkva niður í það fen og foræði, er enginn fái hana upp úr dregið.
Þótt þessu dæmi væri fylgt, mundi nú þegar hættulaust að taka Sogið til virkjunar, ef málið er í höndum góðrar stjórnar, er nýtur aðstoðar vel hæfs vatnastjóra. — Jeg skal skjóta því hjer inn í, að jeg tel þjóðráð, að stjórnin fengi slíkan ráðunaut frá „kungliga vattenfallsstyrelsen“ í Svíþjóð, þar sem vatnsvirkjan af ríkisins hálfu er svo langt á veg komin; og ekki mætti horfa í, þótt greiða þyrfti þaulvönum manni nokkrum þúsundum króna hærra kaup en einhver viðvaningur kynni að fást fyrir. Jeg hefi átt tal við hina útlendu forstjóra fossafjelagsins „Íslands“, og sögðu þeir, að ekki gæti komið til mála að byrja á virkjun Sogsins af þeirra hálfu, þótt leyfi fengist, fyr en 5–6 árum eftir ófriðarlokin. Það þarf því ekki að detta ofan yfir menn, þótt stjórnin geti ekki þegar í stað hafið virkjan Sogsfossanna; hún þarf sinn undirbúningstíma til þess, ekki síður en fjelagið.
Þá hefir hv. þm. S.-Þ. (P. J.) og aðrir fleiri látið það í veðri vaka, að ríkið mundi ekki geta fengið lán, sem þyrfti til að framkvæma verkið. Einmitt það, þessir herrar ætla, að ríkinu mundi ganga ver að fá lán en einstökum mönnum eða fjelögum. Enginn dregur í efa, að fossafjelagið „Titan“ geti fengið lán til miljónafyrirtækis síns; munu þó þeir, sem kunnugir eru í Noregi, ekki telja hag þess blómlegri en íslenska ríkisins.
Jeg veit, að það muni satt vera, er hv. þm. S.-Þ. (P. J.) gefur í skyn, að fossafjelagið „Ísland“ muni hafa fje á reiðum höndum, því að þar standa að auðugir menn, sem vísa eiga aðstoð bankanna dönsku, einkum ef von væri um að geta með því lagt undir Dani atvinnumál konungsríkisins Íslands, ríkið sem þeir mistu úr höndum sjer í fyrra. En enginn getur sagt, nema þessir sömu menn mundu fáanlegir til að lána íslensku stjórninni fje til að virkja Sogsfossana. Þess hefir eflaust ekki verið farið á leit enn. Annars er jeg viss um, að hvert á land sem farið er mun auðið fyrir ríkið að fá fjelán til þessa fyrirtækis, svo arðvænlegt sem það er. Það verður því ekki hörgull á fje.
Svo er einn vegur enn. Í 5. gr. fossafrv. frá mjer, 1917, stendur svo:
„Nú vilja aðrir gerast hluthafar í þeim fyrirtækjum, sem hjer ræðir um, og skal það heimilt, svá fremi hið íslenska ríki hefir alla stjórn og yfirumsjón fyrirtækisins, og hefir eigi minna en helming atkvæða á hluthafafundi“.
Mjer heyrðist hv. þm. S.-Þ. (P. J.) tala um, að þessi vegur væri frumhugsaður af honum. En hjer hefi jeg fyrir mjer prentað mál, sem sannar og sýnir, að jeg hefi ekki lengra farið frá upphafi, en jeg hefi álitið það heppilegra og hættulaust, að ríkið tæki útlendinga eða innlenda í fjelag með sjer, að eins að það hefði töglin og hagldirnar um alla stjórn fyrirtækisins. Á þennan hátt eru dæmi til að ríkisfyrirtæki hafi verið stofnuð; svo er um ríkisbankann þýska, og fleira mætti til nefna. Það þykir ekki hætta, þótt útlent fje flytjist inn í löndin, ef stjórn þess er í innlendum höndum, einkum ríkisins sjálfs.
Einu gleymdi jeg þegar jeg var að tala um, til hvers nota mætti aflið úr Soginu. Það var járnbrautin. Það hefir lengi verið talað um, að leggja þyrfti járnbraut austur yfir Fjall, og jeg hefi altaf verið á því, að svo ætti að verða, þegar svo langt væri komið, að rafmagn yrði notað við rekstur hennar, en fyr eigi; því að ófært mundi að reka hana með kolaorku. Hitt er órökstutt mál, þegar því hefir verið haldið fram, að járnbrautarrekstur með raforku mundi ekki borga sig, enda er nú sú reyndin á orðin í Svíþjóð, að þar borgar það sig mætavel. Hafa Svíar gert tilraunir með það ár eftir ár, og eru nú smám saman að breyta kolavögnunum í raforkuvagna. Og orkustöð ríkisins við Porjus, langt uppi í Norrlandi, er einkum gerð til þess að reka járnbraut þar, æði langa, til finsku landamæranna, og er það vitað þar í landi, að sú braut hefði ekki getað borið sig, ef raforkan úr Porjus hefði ekki verið notuð við rekstur brautarinnar. Það er svo langt frá, að sænska stjórnin sje hrædd við að nota raforku til járnbrautarrekstrar og annara starfa, að hún eykur árlega stórum raforkustöðvar sínar við Porjus, Älvkarleby og við Trollhättan. Sáum vjer fossanefndarmenn þá viðbót í fyrra, og var hún mikil og verkleg. Reynslan hefir sýnt það tvent í Svíþjóð: að raforkufyrirtæki ríkisins borgar sig, og að það er þjóðráð að hagnýta raforku við járnbrautarekstur. Hið sama mundi og sýna sig hjer á landi. Að minsta kosti mundi ekki sýnast álitlegt að hafa kol til að reka áfram járnbrautarvagna, með því verði, sem á þeim er og á þeim mun verða. Jeg hefi nú hjer að framan reynt að lýsa afstöðu atvinnuvega verra sín á milli, og hver áhrif stóriðja mundi hafa á þá; en vera má, að mjer hafi ekki tekist að gera það nógu ljóslega. En þessi rök, sem jeg hefi að framan nefnt, liggja til þess, að jeg legg til, að stjórnin taki vatnið í Soginu í sínar hendur, svo að hún hafi í sinni hendi, með hverju móti og að hve miklu leyti stóriðja sje rekin hjer á landi. (Ókyrð).
Menn óar við að hugsa til þess, að aðalsparnaðarmenn þingsins skuli ekki gefa sjer tíma til að hugsa um þetta stórmál, slíkt mál, sem etið gæti upp æfilangt nurl þeirra á einu augnabliki. En hvað sem þessu líður, vona jeg þó, að allir hv. þingdeildarmenn muni samþykkja tillöguna, og að stjórnin framkvæmi síðan sem fyrst og viturlegast það, sem fyrir hana er lagt í tillögunni.
Byrjunin á að vera sú, að fara til aðallandeigenda við Sogið, eða með öðrum orðum til eiganda Úlfljótsvatns, og leita samninga við hann. Liggur þá beint við að semja við hann um að fá dómsúrskurð um það, hver sje hinn rjetti eigandi vatnsins. Reyndar er það ekki svo mikils um vert um Sogið, því að andvirði vatnsins verður þar aldrei nema mjög lítill hluti kostnaðarins við virkjunina; eigi að síður er það nauðsynlegt, til þess að fá skorið úr rjettaróvissunni, og til þess að stöðva vatnssöluna hjer í landi, sem er þjóðinni til stórskaða. Að öðrum kosti fer svo, að Íslendingar verða að kaupa vatnsaflið í sínu eigin landi dýrum dómum af útlendingum, sem hafa fengið það fyrir nálega ekkert, en með allskonar brutlsölu komið því í afarverð. Vel má svo fara, að bóndi, sem selt hefir vatnsafl frá sjer fyrir t. d. 1000 kr., borgi síðar á að eins 3 árum upphæð þessa fyrir notkun þess, og verði svo árlega að borga sömu upphæð eða þaðan af meira. Fyrir hálsinn á þessum ófögnuði þarf að taka.
Jeg skil enn ekki í því, hvers vegna stjórnin varð ekki við tilmælum milliþinganefndarinnar um að stöðva fossabraskið meðan nefndin sæti að störfum. Það hefði orðið til góðs fyrir málið, og sparnaður fyrir ríkið.
Skal jeg svo ekki fara fleiri orðum um málið, enda mun það óþarfi, því að eftir því, sem jeg lýsti afstöðu þingsins til hinna ýmsu atvinnumála, kom það ljóst fram í því yfirliti, hve glögt yfirlit hv. þing hefir yfir atvinnuvegina í heild og samband þeirra sín á milli, og af þeim sökum hlýtur þessu máli að vera vel borgið í höndum þessarar hv. deildar.