23.09.1919
Neðri deild: 71. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2456 í B-deild Alþingistíðinda. (2707)
79. mál, lögnám á umráðum og notarétti vatnsorku allrar í Sogni
Frsm. minni hl. (Sveinn Ólafsson):
Bæði jeg og aðrir lögðu áherslu á það við fyrri umr. þessa máls, að þær ráðstafanir gætu tekist sem fyrst, sem þarf til fullra ríkisumráða á Soginu. Jeg færði fram sem ástæður fyrst og fremst þörf Reykjavíkur og nágrennisins á raforku til heimilisþarfa, og í öðru lagi það, að því lengur sem þetta drægist, því meira mundi verða að gjalda fyrir þessi rjettindi, þar sem bæði land og vatn mun hækka í verði.
Það kom skýrt fram hjá sumum hv. l þm., að landinu mundi ofvaxið að hagnýta vatnsaflið, þó það væri tekið, og þess vegna voru sumir tregir til að greiða till. atkv.
Þeir voru þeirrar skoðunar, að vatnið myndi liggja ónotað eftir sem áður í langan tíma.
En út af þessu vildi jeg segja nokkur orð.
Slíkt fyrirtæki sem þetta þarf ekki endilega að komast á í einum rykk. Virkjunin þarf ekki öll að fara fram á 1–2 árum. Hún gæti farið fram á 10–15 árum, og þó komið tiltölulega fljótt að notum. Giska mætti á, ef beisluð væru 60,000 hestöfl, að notaðar yrðu 5 spaðavindur, hver 12,000 hestafla, og kæmi ein á hverjum þriggja ára fresti.
Jeg skal þessu til sönnunar benda á, að ríkisfyrirtækið við Trollhattan í Svíþjóð hefir verið á prjónunum frá því um aldamót. Þar er nú búið að virkja 166 þús. hestafla, og hefir það tekið allan þennan tíma, og virkjun eigi lokið enn.
Auðvitað þyrfti, um leið og byrjað væri að virkja Sogið, að vinna ýms undirbúningsverk að fullu eða til frambúðar, eins og t. d. vatnsmiðlun alla og skurðgröft frá stíflutjörn að safnbrunni þeim, sem vatnið ætti að steypast úr í pípum ofan í aflstöðina, sem líklega yrði neðan við Kistufoss, en frá safnbrunni mundi svo pípum fjölgað smám saman, eftir því sem vjelum yrði fjölgað í aflstöðinni, og þar til alt vatn sem áður rann farveg Sogsins, rynni um pípurnar og aflið væri fullnotað. En virkjunin þarf ekki að koma öll í einu. Henni má haga eins og öllum stærri virkjunum í nágrannalöndunum, t. d. við Trollhättan, og að nokkru leyti við Rjukan í Noregi, að taka virkjunina fyrir smátt og smátt. Þegar þessa er gætt, geta það ekki talist neinar öfgar, að landið smám saman vinni verkið og afli fjár þess, sem með þarf, jafnvel án stórlána, enda eigi ósennilegt, að fleiri gætu átt þátt í fyrirtækinu, þótt ríkið ætti mest og rjeði fyrirtækinu.
Þetta vildi jeg nefna, til þess að hrekja þann efa, sem fram hefir komið hjá ýmsum hv. þm. um það, að þetta gæti tekist.
Hv. þm. S.-Þ. (P. J.) hjelt, að treglega mundi ganga að fá fje til þessa fyrirtækis hjer á landi, þótt það hefði gengið greiðlega í nágrannalöndunum.
En jeg held, að þegar um jafnhagkvæmt vatnsfall er að ræða og Sogið, þá megi eins búast við því gagnstæða, því að auðvitað er því auðveldara að fá fjeð, því betri sem aðstaðan er og fyrirtækið álitlegra.
En það er eitt, sem ekki hefir verið dregið fram, sem jeg tel einna alvarlegustu tálmunina fyrir þessu.
Það er vegaleysið austur að Sogi. Þangað vantar járnbraut, til þess að flytja að öll gögn og annað, sem til fyrirtækisins þarf. Það verður því að reikna með því, að járnbraut verði að leggja, og með það fyrir augum get jeg kannast við, að fyrirtækið fari fram úr þeirri áætlun, sem gerð var af okkur stuðningsmönnum till. fyrir nokkru, eða 8–12 milj. króna. En þó trúi jeg ekki, að kostnaðurinn verði nálægt því, að komast upp í 30–40 milj. kr., eins og hv. þm. S.-Þ. (P. J.) hjelt fram.
Mannvirkin við Rjukan, þar sem virkjuð eru um 300 þús. hestöfl, hafa kostað rúmar 100 milj. kr. Fyrirtækið við Trollhättan hefir kostað, eftir því sem mig minnir, um 70 milj. kr., og er þar þó með talinn skipastiginn sá hinn mikli fram hjá Trollhättastrengjunum upp í Væni, sem kunnur er orðinn og talinn eitt af helstu mannvirkjum Norðurlanda.
Jeg held því, að þetta fyrirtæki þurfi ekki að vaxa mönnum í augum, þó um sje að ræða 12–20 milj. kr., þegar þess er gætt, að þá upphæð má greiða smátt og smátt á löngu árabili.
En þetta fyrirtæki verður ríkið sem fyrst að taka í sínar hendur, ef það á ekki að verða útlendingum að bráð.
Um brtt. hv. 1. þm. Árn. (S. S.) að bæta því við till., að halda skuli áfram rannsóknum og mælingum við Sogið, hefi jeg það eitt að segja, að jeg tel ekki þörf þeirrar viðbótar nú. Þær mælingar eru þarflitlar, ef ekkert yrði úr samningum eða lögnámi á Soginu.
Til þess er líka nógur tími, þegar fengin er vissa fyrir því, að Sogið verði ríkiseign. Þetta má líka ákveða á næsta þingi, ef svo langt er þá komið, að fyrirsjáanlegt sje, að landið nái bráðlega Soginu til eignar og umráða fullra.