26.09.1919
Efri deild: 67. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 2499 í B-deild Alþingistíðinda. (2762)

158. mál, réttur ríkisins til vatnsorku í almenningum

Guðmundur Ólafsson:

Það má segja, að till. batni þeim mun meira, sem hún styttist, en samt líst mjer hún ekki góð enn þá, þótt jeg sje samþykkur, að afrjettirnar falli burtu. Mjer þótti undarleg ræða hv. frsm. (K. E.), þar sem hann taldi afrjettir, sem væru eign einstakra jarða, undanþegnar, en svo leit út, að afrjettir, sem sveitarfjelög hefðu keypt af einstökum jörðum, ættu ekki að vera það. Jeg sje ekkert samræmi í þessu, eða ástæðu til, að þessar afrjettir sjeu rjetthærri en hinar.

Jeg held því enn, að till. sje einkis nýt.