01.07.1919
Efri deild: 1. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 17 í B-deild Alþingistíðinda. (2812)

Stjórnarfrumvörp lögð fram

Forseti skýrði frá:

A.

Að forsætisráðherra legði fyrir deildina þessi lagafrumvörp af hálfu stjórnarinnar:

1. Frv. til laga um hæstarjett.

2. — til laga um ríkisborgararjett, hversu menn fá hann og missa.

3. — til laga um afstöðu foreldra til óskilgetinna barna.

4. Frv. til laga um stofnun og slit hjúskapar.

5. — til laga um afstöðu foreldra til skilgetinna barna.

6. — laga um breyting á lögum nr. 1, 3. jan 1890, um lögreglusamþyktir fyrir kaupstaðina.

B.

Að atvinnumálaráðherra legði fyrir deildina þessi stjórnarfrumvörp:

1. Frv. til laga um einkaleyfi.

2. — til laga um breyting á lögum nr. 54, 3. nóv. 1915, um stofnun brunabótafjelags Íslands.

3. — til laga um breyting á lögum nr. 54, 3. nóv. 1915, um stofnun brunabótafjelags Íslands.

C.

Að fjármálaráðherra legði fyrir deildina þessi stjórnarfrumvörp:

1. Frv. til laga um breyting á lögum nr. 22, 3. nóv. 1915, um fasteignamat.

2. — til laga um skrásetning skipa.

3. — til laga um breyting á lögum fyrir Ísland, nr. 17., frá 8. júlí 1902, um tilhögun á löggæslu við fiskiveiðar fyrir utan landhelgi í hafinu umhverfis Færeyjar og Ísland.

4. — til laga um breyting á siglingalög um 30. nóv. 1914.

5. — til laga um breyting á löggjöfinni um skrásetning skipa.

Ljet forseti þess jafnframt getið, að öllum framantöldum frumvörpum hefði verið útbýtt á 1. fundi sameinaðs þings, þriðjudaginn 1. júlí.