14.08.1919
Neðri deild: 35. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 47 í C-deild Alþingistíðinda. (2864)

9. mál, seðlaútgáfuréttur Landsbanka Íslands

Forsætisráðherra (J. M.):

Jeg legg ekki svo sjerstaklega mikla áherslu á það, hvort þetta frv. verður samþ. eða ekki. En jeg verð að taka undir með hv. framsm. minni hl. (M. G.) um það, að jeg tel óforsvaranlegt af meiri hl. að ganga svo frá málinu, eins og raun er á orðin. Það er sjálfsagt að koma fram með álit um, hvað gera ætti í málinu, ef frv. yrði felt eða því yrði vísað frá. Sá tími, sem Íslandsbanki hefir heimild til seðlaútgáfunnar, er að verða úti (M. G.: Hálfur mánuður eftir), og hvernig stendur þá á því, að meiri hl. hefir ekki tekið það til athugunar.

Rökstuddu dagskrána, sem fram er komin, má með engu móti samþykkja, því að það er að svæfa málið. Og jeg legg áherslu á, að það eigi ekki að ráða því til lykta á þann hátt, heldur taka málið út af dagskrá og fresta umr., eða lofa því að ganga til 2. umr., ef vera kynni, að hv. meiri hl. gerði einhverjar breytingar til batnaðar á meðan.