16.08.1919
Neðri deild: 37. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 91 í C-deild Alþingistíðinda. (2876)

9. mál, seðlaútgáfuréttur Landsbanka Íslands

Einar Arnórsson:

Jeg skal ekki vera langorður, því að jeg sje ekki, að hv. deild sje nokkru nær um, hvort landinu sje hagur eða óhagur í að taka þennan seðlaútgáfurjett í sínar hendur.

Það má reikna út, hvern hag landssjóður hefir haft af árgjaldinu. Miðað við reikninginn frá 1918 hefir hagnaðurinn verið 140 þús. kr. Ef þetta skipulag hefði þá verið komið á, hefði hann orðið rúm 60 þús. Landssjóður hefði þess vegna tapað tæpum 80 þús. á breytingunni. Hitt er ekki auðvelt að segja um, hvort sömu tölur ganga aftur næsta ár. Til þess að þetta borgi sig þarf Landsbankinn auðvitað að fá tilsvarandi hagnað og hann yrði hjá landssjóði. Nú er auðvitað erfitt að segja um, hvern hag bankinn hefði af þessu nýja skipulagi. Það fer eftir ýmsum atriðum, sem ekki er hægt að segja um nú, t. d. viðskiftaþörfinni. Því meiri sem viðskiftaþörfin yrði, því meira yrði að gefa út af seðlum, og því meiri yrði hagnaðurinn af útgáfunni. En því minna, sem gefið yrði út af seðlum, því minni yrði hagnaðurinn. En þetta er ekki hægt að reikna fyrirfram. Við vitum meðaltal þeirrar seðlafúlgu, sem bankinn hefir haft í veltu í seðlum. Árið 1918 hefir hún verið nálega 6 milj. kr. Ef reiknað er með þeirri fjárhæð, mundi Landsbankinn hafa unnið upp þann halla, sem landssjóður biði af skiftunum. Hvort þetta nemur meira eða minna framvegis er erfitt að segja. Ekkert liggur fyrir um það, hvern tilkostnað Landsbankinn kann að hafa af fjárflutningi fyrir Íslandsbanka, og er því ómögulegt að gera sjer grein fyrir því.

Hitt er annað mál, að ef Landsbankinn tæki í sínar hendur allan seðlaútgáfurjettinn, væri hann sjálfkjörinn til að taka sjer á herðar alla forystu í peningamálum. Hins vegar sýnist vera nokkuð hæft í því, að bankastjórarnir hafi ekki trú á, að þetta gæti orðið. Hitt er óvíst, hvort þetta stafar af ótrú á málefninu sjálfu eða því, að þeir treystist ekki til að fara með fjárráðin. En fullyrt er, að bankastjórnin hafi álitið þetta vera aðgengilegt í vetur, enda mundi stjórnin aldrei hafa borið frv. fram hjer á þingi gegn samþykki bankastjóranna.

Fjárhagsnefnd virðist ekki hafa íhugað málið nógu rækilega. Sjerstaklega hefði meiri hl. átt að skoða fleiri möguleika. í nál. þremenninganna (M. G., P. A. Ó. og Þ. Þ.) er skýrt frá þrennskonar tilboðum, og er svo að sjá, sem landssjóður hafi átt kost á öllum seðlaútgáfurjettinum. En af því að minni hl. nefndarinnar telur tilboðið í stjórnarfrv. vera viðunandi, er ekki ástæða fyrir hann að fara frekar út í þá sálma. En meiri hl. átti að gera grein fyrir því, hvernig hann liti á hina hlið tilboðsins, sem merkt er með I. En um það hefir deildin ekkert fengið að vita. Mjer sýnist óvíst, að sú leið sje ekki fær, og jafnvel betri en hin, að taka við nokkrum hluta rjettarins. Sú leiðin, að taka við öllum útgáfurjettinum, 2½ miljón, er þó skýrari og hreinni. Það er að eins um að ræða fjárgreiðslu í eitt skifti fyrir öll, og þá ekki tekið fram, að hann vilji fá leyfi til að auka hlutafje sitt eftir þörfum.

Jeg get ekki felt mig við dagskrá meiri hl. Hún gerir ráð fyrir, að samningaumleitanir sjeu strandaðar og málið lagt á hilluna í 15 ár. Ef frv. verður rutt úr götunni með rökstuddri dagskrá, vil jeg, að það komi fram, að ekki sje ætlast til, að málið sje kistulagt þessi 15 ár, sem eftir eru af sjerleyfistímanum. Jeg er ekki viss um, að loku sje fyrir það skotið, að bankinn fengist til að slaka eitthvað á skilyrðunum. Meiri hl. hefir ekki vikið einu orði að því, hver skilyrði hann teldi vera aðgengileg. Hann mun auðvitað svara þessu á þá leið, að fyrir sjer hafi ekki legið annað en frv. En jeg geri ráð fyrir, að alt málið hafi legið fyrir fjárhagsnefnd, og hana bar skylda til að athuga það í heild. En þessa skyldu hefir hún vanrækt. Nefndin hefir að eins komið með þessa rökstuddu dagskrá og vill þar með kistuleggja málið.

Jeg hlýt þess vegna að vera á móti dagskránni, en áskil mjer hins vegar óbundnar hendur um atkvæði um frv. sjálft.